Í desember í hittifyrra voru fimm af hverjum sex ferðum frá Keflavíkurflugvelli á vegum Icelandair. Með auknum umsvifum Wow Air og Easy Jet hefur vægi flugfélaganna hér á landi breyst.
Flugumferð á Keflavíkurflugvelli jókst um fjórðung í desember síðastliðnum í samanburði við árið á undan. Öll þau fimm flugfélög, sem fljúga héðan allt árið um kring, bættu við ferðum í samanburði við sama tíma í hittifyrra samkvæmt talningum Túrista.
Icelandair og Wow Air fjölguðu hvort um sig brottförum sínum um fimmtíu talsins og nemur það aukningu um tíund hjá Icelandair. Þetta er hins vegar nærri því tvöföldun á umsvifum Wow Air á milli ára. Easy Jet fór úr tíu brottförum í 45 en viðbótin hjá Norwegian og SAS er mun minni.
Með þessari auknu flugumferð í desember þá hefur vægi félaganna breyst milli ára. Í desember árið 2012 stóð Icelandair fyrir fimm af hverjum sex brottförum frá Keflavík en núna er hlutfallið tæp 74 prósent. Vægi Wow Air fer úr tíu prósentum upp í fimmtán og hlutdeild Easy Jet af ferðunum fer í 6,5 prósent en var tæp tvö prósent í hittifyrra.
Í vetur er boðið upp á beint flug til 33 áfangastaða frá Keflavík.
Vægi flugfélaganna á Keflavíkurflugvelli í desember 2013, í brottförum talið:
- Icelandair: 73,7%
- Wow air: 15,3%
- Easy Jet: 6,5%
- SAS: 2,6%
- Norwegian: 1,9%
TILBOÐ: Sérkjör á gistingu í Kaupmannahöfn, Berlín, Krít, Edinborg og Stokkhólmi
BÍLALEIGUBÍLL: Gerðu verðsamanburð á bílaleigum út um allan heim