Samfélagsmiðlar

20 helgarflug í mars á undir 40 þúsund

Hér eru ferðirnar fyrir þá sem vilja komast út ekki seinna en í næsta mánuði en ætla þó ekki að kosta öllu til.

Það er hægt að komast í helgarferð til Helsinki í lok mars fyrir 39.800 krónur og þá viðrar kannski nógu vel til að sitja úti með kaffið. Mynd: Ferðamálaráð Helsinki
Það eru vafalítið margir lesendur sem gætu vel hugsað sér að skreppa í stutta helgarferð til útlanda á næstu vikum. Það kostar þó alla jafna töluvert að kaupa far út með svo stuttum fyrirvara. Túristi hefur engu að síður fundið 20 flugmiða á undir 40 þúsund krónur í mars og allt eru þetta helgarferðir.

Það er úr mestu að moða fyrir þá vilja til London, Kaupmannahafnar eða Oslóar enda er framboð á flugi til þessara borga meira en gengur og gerist.

Með því að smella á borgarheitin í listanum er hægt að gera einfaldan verðsamanburð á hótelum í viðkomandi borg og þannig setja saman ódýra helgarferð í næsta mánuði.

Hafa ber í huga að borga þarf fyrir innritaðan farangur hjá lággjaldaflugfélögunum.

20 ódýr helgarflug í mars

  1. Osló 6. til 9. mars: 22.321 kr. með Norwegian
  2. Kaupmannahöfn 6. til 10. mars: 29.476 kr. með Primera Air
  3. Kaupmannahöfn 7. til 10. mars: 35.230 kr. með Wow Air
  4. Kaupmannahöfn 13. til 17. mars: 37.260 kr. með Icelandair.
  5. Kaupmannahöfn 13. til 17. mars: 29.476 kr. með Primera Air
  6. Osló 13. til 16. mars: 35.530 með Icelandair
  7. Osló 13. til 17. mars: 34.376 með SAS
  8. Glasgow 14. til 18. mars: 33.940 kr. með Icelandair.
  9. London 14. til 16. mars: 38.333 kr. með Wow Air
  10. Kaupmannahöfn 15. til 17. mars: 29.230 kr. með Wow Air
  11. Edinborg 20. til 24. mars: 35.863 kr. með Easy Jet
  12. Osló 20. til 23. mars: 22.734 með Norwegian
  13. Kaupmannahöfn 20. til 24. mars: 29.476 kr. með Primera Air
  14. Manchester 21. til 24. mars: 37.240 kr. með Icelandair
  15. London 21. til 26. mars: 36.328 kr. með Icelandair
  16. Helsinki 21. til 24. mars: 39.800 kr. með Icelandair
  17. Bristol 27. til 31. mars: 36.794 kr. með Easy Jet
  18. London 28. til 31. mars: 34.333 kr. með Wow Air
  19. Kaupmannahöfn 28. til 31. mars: 29.230 kr. með Wow Air
  20. Manchester 29.mars til 1.apríl: 26.375 kr. með Easy Jet

TILBOÐ: 3ja nóttin frí í Edinborg15% afsláttur í Kaupmannahöfn
NÝJAR GREINAR: Ferðamynstur íslenskra túrista í Skandinavíu

    Nýtt efni

    Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

    Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

    Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

    Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

    Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

    Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

    Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

    Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …