Samfélagsmiðlar

Tugprósenta lækkun á farmiðum

Það er flogið mun oftar héðan til Lundúna nú en á sama tíma í fyrra. Ódýrustu fargjöld félaganna þriggja sem fljúga til borgarinnar hafa lækkað um nærri fjörtíu prósent milli ára. Farmiðar til Kaupmannahafnar og Oslóar lækka líka.

Fyrir ári síðan kostaði ódýrasta farið til London eftir fjórar vikur tæpar 58 þúsund krónur. Í dag er hins vegar hægt að bóka flug til borgarinnar fyrir um 42 þúsund með svo skömmum fyrirvara. Lægstu verð Icelandair og Wow Air hafa lækkað um rúmlega fjórðung frá könnun Túrista fyrir ári síðan og hjá Easy Jet kostar ódýrasta farið nærri þrjátíu þúsund krónum minna en í fyrra eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Líkt og greint var frá hér á síðunni nýverið þá hefur framboð á flugi til London meira en tvöfaldast síðustu tvö ár og eru vikulegar ferðir nú fjörtíu talsins. Sú aukning gæti verið útskýringin á þessari miklu verðlækkun núna.

Sama upp á teningnum í flugi til Kaupmannahafnar og Oslóar

Í þessari viku er Wow Air með tilboð á flugi til Kaupmannahafnar og það kann að vera ástæðan fyrir því að lægsta far félagins til höfuðborgar Danmerkur, um miðjan mars, hefur lækkað um rúmlega 12 þúsund milli ára. Fargjöld Icelandair hafa þó einnig lækkað um nærri sömu upphæð.

Túristi kannaði ekki hvað kostaði að bóka flug til Oslóar með litlum fyrirvara í fyrra en eins og sjá má á næstu síðu þá hefur farið með Norwegian lækkað um helming ef gengið er frá kaupunum með þriggja mánaða fyrirvara. Eins og áður er farangursgjaldi bætt við farmiðaverðið þegar það á við.

Þróun fargjalda í viku 12 (17.-23. mars) milli ára þegar bókað er með fjögurra vikna fyrirvara

2014

2013Breyting
London:
Easy Jet44.395 kr.73.268 kr.-39%
Icelandair44.500 kr.61.150 kr.-27%
Wow Air42.323 kr.57.825 kr.-27%
Kaupmannahöfn:
Icelandair48.460 kr.59.040 kr.-18%
Wow Air42.220 kr.54.560 kr.-23%
Osló:
Icelandair33.240 kr.Osló var ekki hluti af verðkönnuninn í fyrra
Norwegian20.735 kr.
SAS34.366 kr.


Í þessum mánaðarlegu könnunum Túrista eru fundin lægstu fargjöldin, báðar leiðir, innan ákveðnar viku hjá hverju félagi fyrir sig. Gert er ráð fyrir að lágmarksdvöl í útlöndum sé tveir sólarhringar. Farangurs- og kreditkortagjöld eru tekin með í reikninginn (sjá samantekt yfir aukagjöld hér). Verð voru fundin á heimasíðum félaganna 19. febrúar 2014 og 18.febrúar 2013.

Á næstu síðu má sjá þróun verðgjalda í viku 20

BÍLALEIGUBÍLAR: Svona borgar þú miklu minna fyrir bílaleigubíl

 

Nýtt efni

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …