Samfélagsmiðlar

Íslendingar ekki lengur fjölmennastir

Auknar flugsamgöngur til Bretlands hefur valdið miklum breytingum á vægi íslenskra og breskra farþega á Keflavíkurflugvelli.

Íslendingar hafa hingað til verið langstærsti farþegahópurinn á Keflavíkurflugvelli. Þetta sýna mánaðarlegar talningar Ferðamálastofu á þjóðernum farþega sem ná aftur til ársins 2002. Í síðasta mánuði urðu hins vegar þau tímamót að hátt í tvö þúsund fleiri Bretar en Íslendingar flugu frá landinu. Bresku farþegarnir voru 22.820 talsins og fjölgaði þeim um 42,9 prósent í samanburði við febrúar í fyrra. Íslendingarnir voru 21.261. Farþegar sem aðeins millilenda í Keflavík eru ekki taldir með.

Fjórða hver ferð til London

Flug til höfuðborgar Bretlands hefur tvöfaldast síðustu tvö ár og er nú flogið þangað fjörtíu sinnum í viku. Í síðasta mánuði fór til að mynda fjórða hver þota héðan áleiðis til London samkvæmt talningu Túrista. Við þetta bætist flug til Manchester, Glasgow, Edinborgar og Bristol og alls eru ferðinar til Bretlands því 54 á viku eða hátt í átta á dag.

Áframhaldandi ferðagleði

Þó Íslendingar séu ekki lengur stærsti hópurinn sem nýtir sér Keflavíkurflugvöll þá hefur ferðum landans til útlanda fjölgað í hverjum mánuði síðan í september í fyrra. Það sem af er ári hefur utanlandsferðunum fjölgað um 6,2 prósent samkvæmt því sem kemur fram á vef Ferðamálastofu.


VINSÆLT: ER ÓDÝRARA AÐ LEIGJA BÍL MEÐ 3JA MÁNAÐA EÐA 3JA VIKNA FYRIRVARA?

Mynd: Isavia

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …