Það tekur innan við klukkutíma að fljúga milli höfuðborga Finnlands og Svíþjóðar en nærri tuttugu tíma að sigla. Seinni kosturinn getur þó verið betri og um leið skemmtileg tilbreyting frá amstrinu sem oft fylgir fluginu.
Þau eru á mörkum þess að geta kallast skemmtiferðaskip, fleyin sem sigla daglega út úr höfnunum í miðborgum Helsinki og Stokkhólms á leið í nætursiglingu yfir Helsingbotn. Seinnipartinn eru festar losaðar og komið til hafnar hinum megin klukkan tíu að morgni. Áður en farþegarnir leggjast til hvílu í káettunum geta þeir gefið sér góðan tíma í að fá sér að borða, kíkt í fríhöfnina og fylgst með skemmtiatriðum. Einnig er hægt að taka því sérstaklega rólega og liggja í heitum potti á útstíminu eða dást að skerjagarði Stokkhólms milli sauna-ferða. Þetta vita heimamenn og Svíar og Finnar eru því í miklum meirihluta um borð og aldursbilið er breitt. Afþreyingin um borð er nokkuð fjölbreytt og matseðlar veitingastaðanna eiga að ná til allra.
Fljótandi fríhöfn
Það eru margir sem fara þessa leið og skipin stór. Til dæmis er Silja Serenade, stærsta skipi Tallink Silja Line, tólf hæða hátt og þar er pláss fyrir nærri þrjú þúsund farþega. Það eru því nokkrir veitingastaðir um borð, barir, kaffihús, krakkaklúbbur heilsurækt, skemmtistaðir og spilavíti. En mest fer þó fyrir fríhöfninni enda kemur helmingur tekna skipafyrirtækjanna frá sölu á tollfrjálsum varningi. Úrvalið af snyrtivörum, víni, sælgæti og alls kyns varningi er gríðarlegt og margir sem ganga frá borði með mun meiri farangur en komið var með daginn áður.
Ódýrara en flug og hótel
Þeir sem vilja gera höfuðborgum Finnlands og Svíþjóðar skil í einni utanlandsferð borga að lágmarki tæpar tíu þúsund krónur fyrir flugmiða á milli. Tveggja manna káetta með baði, hjá Tallink Silja Line, kostar til að mynda álíka mikið og rúmar allt að fjóra farþega. Verðsamanburðurinn er því skipunum í vil þó munurinn minnki ef bókuð er káetta með útsýni út á haf eða meiri munaði. Maturinn um borð kostar hins vegar meira en greiða þarf á sambærilegum stöðum á landi. Á móti kemur að þeir sem fara sjóleiðina spara sér eina nótt á hóteli.
Icelandair flýgur daglega frá Keflavík til Stokkhólms og álíka oft til Helsinki. Það er því lítið mál fyrir íslenska túrista að fljúga til annarrar borgarinnar og heim frá hinni og það er næsta víst að sigling á milli höfuðborganna tveggja er eftirminnilegri en klukkutíma flugferð.