Það kostar mest að vera í borgarferð í Evrópu en minnst í Suðaustur-Asíu samkvæmt athugun Tripadvisor.
Par sem fer út að út að borða, kaupir sér vín með matnum, kokteil á eftir og tekur svo leigubíl heim á fjögurra stjörnu hótel greiðir um sextíu þúsund krónur fyrir allt saman ef dvalið er í London. Annars staðar er þessi pakki ódýrari samkvæmt athugun ferðasíðunnar Tripadvisor sem hefur borið saman verðlag í 48 vinsælum ferðamannaborgum.
Eins og sjá má hér fyrir neðan á Evrópa marga fulltrúa á listanum yfir dýrustu áfangastaðina en aðeins þrjár evrópskar borgir komast á lista þeirra ódýrustu.
Frá Keflavík er flogið beint til níu af þeim tíu dýrustu en engin af borgunum á lista þeirra ódýrustu er hluti að leiðakerfi flugfélaganna hér á landi. Þó er reglulega boðið upp á pakkaferðir til Prag og Búdapest.
Dýrustu ferðamannaborgirnar | Ódýrustu ferðamannaborgirnar |
1. London | 1. Hanoi |
2. París | 2. Jakarta |
3. New York | 3. Sharm el sheik |
4. Stokkhólmur | 4. Bangkok |
5. Osló | 5. Sófía |
6. Zurich | 6. Höfðaborg |
7. Kaupmannahöfn | 7. Mumbaí |
8. Helsinki | 8. Kuala Lumpur |
9. Toronto | 9. Prag |
10. Sydney | 10. Búdapest |
TILBOÐ: 15% AFSLÁTTUR Í KAUPMANNAHÖFN
ORLOFSÍBÚÐIR: Í PARÍS – Í BARCELONA
BÍLALEIGA: GERÐU VERÐSAMANBURÐ Á BÍLALEIGUBÍLUM