Samfélagsmiðlar

Ekki jafn margir á ferðinni síðan í júlí árið 2008

Það flugu 41.163 Íslendingar frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði sem er töluverð fjölgun frá sama tíma í fyrra og mesti farþegafjöldi í einum mánuði síðan fyrir hrun.

Utanlandsferðum Íslendinga hefur fjölgað umtalsvert það sem af er ári. Á fyrri helmingi síðasta árs innrituðu ríflega 170 þúsund Íslendingar sig í flug á Keflavíkurflugvelli en á sama tíma í ár var fjöldinn 185 þúsund samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Í júní fjölgaði íslenskum farþegum um nærri fimm þúsund miðað við sama tíma í fyrra og voru þeir 41.163 talsins. Til að finna annan eins fjölda íslenskra farþega í einum mánuði þarf að leita aftur til júlí árið 2008. En árin fyrir hrun náði ferðagleði landans hámarki og fóru nærri 470 þúsund Íslendingar um Leifsstöð árið 2007 eða 105 þúsund fleiri en allt árið í fyrra.

Nítján flugfélög

Í síðasta mánuði voru farnar meira en fimmtán hundruð áætlunarferðir frá Keflavík til útlanda samkvæmt talningu Túrista. Að jafnaði voru þá í boði fimmtíu og ein ferð á dag og sáu nítján flugfélög um millilandaflugið. Ferðunum og félögunum hefur fjölgað hratt síðustu tvö ár því í júní árið 2012 voru flugfélögin fimmtán talsins og daglega voru í boði fjörtíu ferðir.

Í þessum mánuði mun framboð á flugi aukast enn meira og af hækkandi afsláttarverði ferðaskrifstofanna að dæma þá er líklegt að margir Íslendingar hafi kosið að vera sólarmegin í fríinu og séu nú í útlöndum eða á leiðinni þangað.

TILBOÐ: 15% AFSLÁTTUR Í KAUPMANNAHÖFN
ORLOFSÍBÚÐIR: Í PARÍSÍ BARCELONA
BÍLALEIGA: GERÐU VERÐSAMANBURÐ Á BÍLALEIGUBÍLUM

Sérvalin hótel í ódýrari kantinum og í milliverðflokki á vegum Tablet Hotels:

París: MayetThe FiveHotel Thérése London: The RockwellThe Mandeville
Kaupmannahöfn: TwentySevenAlexandra New York: AceSmyth
Barcelona: MarketGranados83 Berlín: KuDamm101Sir F.K. Savigny

 

 

Nýtt efni

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …