Það var slegið farþegamet á Keflavíkurflugvelli í júlí og farnar voru rúmlega sautján hundruð áætlunarferðir frá vellinum. Icelandair og WOW air stóðu fyrir nærri átta af hverjum tíu brottförum. MEIRA
Það var slegið farþegamet á Keflavíkurflugvelli í júlí og farnar voru rúmlega sautján hundruð áætlunarferðir frá vellinum. Icelandair og WOW air stóðu fyrir nærri átta af hverjum tíu brottförum.
Í síðasta mánuði fóru 546.749 farþegar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar og aldrei áður hafa þeir verið jafn margir í einum mánuði. Aukningin er 17,8 prósent miðað við sama mánuð í fyrra segir í tilkynningu frá Isavia, rekstraraðila flugvallarins í Keflavík.
20 flugfélög í júlí
Til að koma öllum þessum fjölda til og frá landinu voru að jafnaði farnar 56 ferðir á dag frá Keflavík samkvæmt talningu Túrista. Það er aukning um nærri þriðjung frá því í júlí í fyrra.
Tuttugu flugfélög héldu uppi áætlunarflugi héðan þennan metmánuð en þau voru sextán í júli í fyrra. Vægi þeirra flestra er þó mjög lágt og hlutdeild Icelandair og WOW air hefur nær ekkert breyst frá sama tíma á síðasta ári. Icelandair stóð því áfram fyrir nærri tveimur af hverjum þremur brottförum og sjöunda hver ferð er á vegum WOW air. Leiguflug á vegum ferðaskrifstofa er ekki tekið með í talningu Túrista.
Vægi fimm stærstu flugfélaganna á Keflavíkurflugvelli í júlí 2014:
- Icelandair: 64,6%
- Wow Air: 13,8%
- Easy Jet: 3,5%
- Airberlin: 3,3%
- SAS: 2,4%
TENGDAR GREINAR: Farið til London lækkar um helming
TILBOÐ Á GISTINGU Í BERLÍN: 5% AFSLÁTTUR – FRÍTT FREYÐIVÍN
Sérvalin hótel í ódýrari kantinum og í milliverðflokki á vegum Tablet Hotels:
París: Mayet – The Five – Hotel Thérése London: The Rockwell – The Mandeville
Kaupmannahöfn: TwentySeven – Alexandra New York: Ace – Smyth
Barcelona: Market – Granados83 Berlín: KuDamm101 – Sir F.K. Savigny