Samfélagsmiðlar

Bestu íslensku gististaðirnir

Í byrjun mánaðar voru ein þekktustu verðlaunin í ferðageiranum afhent og skiptu fimm íslenski hótel á milli sín sex verðlaunum. MEIRA

 

 

Í byrjun mánaðar voru ein þekktustu verðlaunin í ferðageiranum afhent og skiptu fimm íslenski hótel á milli sín sex verðlaunum.

Fimm íslenskir gististaðir fengu viðurkenningu þegar verðlaunaafhending World Travel Awards fór fram í Aþenu 2. ágúst. Verðlaunin eru ein þau þekktustu í ferðaþjónustunni og ná til hinna ýmsa hluta geirans. Í flokki hótela eru veitt verðlaun eftir löndum skiptu fimm íslensk hótel sex verðlaunum á milli sín. Annað árið í röð var Radisson Blu 1919 valið það hótel sem þykir standa fremst („Iceland´s Leading Hotel) hér á landi en Hótel Borg, Hótel Holt og Hótel Keflavík voru einnig tilnefnd til verðlaunanna.

Radisson Blu Hótel Saga fékk gullið í flokki íslenskra viðskiptahótela og var jafnframt valið besti dvalarstaðurinn („Iceland´s leading resort“) á meðan Hótel Glymur þykir fremsta hönnunarhótelið. Reykjavik Residence Hotel og Grettisborg Appartments fengu verðlaun í flokki íbúðahótela.

NÝJAR GREINAR: Hundar draga úr ferðagleðinniJafndýrt að leigja bíl á Kanarí og Tenerife
TILBOÐ: Vænn afsláttur á hóteli í Kaupmannahöfn

 

 

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …