Við bakka Genfarvatns standa reisulegar byggingar sem hýsa fimm stjörnu hótel, frægar úrabúðir og fína veitingastaði. Í hæðunum fyrir ofan eru svo dýrustu villur álfunnar. Vatnið sjálft er samt leikvöllur allra borgarbúa. Á sumrin svamla þar allir saman og á veturna hittist fólk af öllum stéttum í gufubaðinu á La Buvette des Bain, bryggjunni sem gengur út í vatnið. Þaðan er líka fallegt útsýni til fjalla en allir tindar sem sjást frá Genf, þar á meðal Mont Blanc, eru hinum megin við landamærin.
Icelandair flýgur til Genf frá lok maí og fram til 23. september. Þar með gefst íslenskum ferðamönnum betra aðgengi að heimaborg Rauða krossins, Genfarsáttmálans og Sameinuðu þjóðanna. Svissneskar og franskar nærsveitir þessarar glæsilegu borgar er ekki síður spennandi og er jafnvel hægt að gera þeim góð skil í dagsferðum. Þá nýtist lestarpassinn sem gestir borgarinnar fá vel því hann gildir í sumum tilfellum þegar komið er út fyrir borgarmörkin.