Þegar árið er liðið munu rétt tæplega fjögur hundruð þúsund íslenskir farþegar hafa innritað sig í flug á Keflavíkurflugvelli.
Þegar árið er liðið munu rétt tæplega fjögur hundruð þúsund íslenskir farþegar hafa innritað sig í flug á Keflavíkurflugvelli. Hvar þessi hópur heldur sig í útlöndum er lítið vitað um nema þegar ferðinni er heitið til Skandinavíu.
Við vopnaleitina á Keflavíkurflugvelli þurfa allir að sýna vegabréf, meðal annars svo hægt sé að flokka farþega eftir þjóðerni. Þar er látið nægja að telja fjölmennustu þjóðirnar ásamt okkur heimamönnum. Fólk frá öðrum löndum fer í flokkinn „aðrir”. Skiljanlega lendir fámenn þjóð eins og okkar í þeim flokki þegar landamæraverðir í öðrum löndum telja útlendingana sem til þeirra koma. Það er því ekki hlaupið að því að fá upplýsingar um hvar í útlöndum Íslendingar verja tíma sínum. Ferðamálaráð Spánar, Bretlands og Bandaríkjanna segjast til að mynda ekki hafa neinar tölur um ferðir Íslendinga innan landanna. Alla vega eru ekki til opinber gögn um kaup Íslendinga á gistingu í þessum löndum þó sennilega haldi hótelstjórar eitthvað bókhald yfir þjóðerni gesta sinna og deili því jafnvel með yfirvöldum.
Danmörk með fastan sess
Það eru nær eingöngu frændþjóðirnar sem vita upp á hár hvar íslenskir ferðamenn eyða nóttinni. Upplýsingar um í hvaða borgum og bæjum í Skandinavíu Íslendingar hafa keypt gistingu eru nefnilega aðgengilegar hjá hagstofunum í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Þegar rýnt er í þær sést að í ár hafa Íslendingar bókað 39.022 gistinætur í Danmörku og þar af voru þrjár af hverjum fjórum á hótelum og gistihúsum í Kaupmannahöfn og nágrenni. Íslenskum hótelgestum í Danmörku hefur fjölgað um tíund frá sama tíma í fyrra sem er álíka aukning og hefur orðið í utanferðum landans í ár. Ekkert hefur því dregið úr vinsældum Danmerkur sem áfangastaðar þó framboð á flugi héðan hafi stóraukist síðustu ár.
Heimagisting í Noregi?
Síðustu ár hafa margir Íslendingar flutt til Noregs og það eru því væntanlega margir hér á landi sem eiga í hús að vernda í Noregi. Það kann að skýra að hluta þá staðreynd að Íslendingar hafa bókað fjórðungi færri gistingar á norskum hótelum í ár í samanburði við sama tíma í fyrra. Hins vegar hafa viðskiptin við sænsk hótel aukist um 16 prósent. Noregur er samt ennþá mun vinsælli áfangastaður því gistinætur Íslendinga þar í ár eru um 31 þúsund talsins. Helmingi fleiri en í Svíþjóð.
Það eru hins vegar ekki aðeins ferðamálayfirvöld í útlöndum sem sýna íslenskum ferðamönnum ekki sértaka athylgi. Erlendu flugfélögin sem hingað fljúga virðast líka áhugalítil um íslenska ferðamenn og birta til að mynda aldrei auglýsingar í hérlendum fjölmiðlum. Ástæðan er líklega sú að vélarnar eru nú þegar þéttskipaðar útlendingum á leið í og úr Íslandsreisu.