Samfélagsmiðlar

Flugstöð Leifs Eiríkssonar opin á jóladag fyrir eina ferð

Millilandaflug hefur hingað til stöðvast á jóladag en á því verður nú breyting. Það verður þó aðeins ein ferð í boði en farþegarnir eiga engu að síður að geta verslað í fríhöfn og fengið sér í svanginn fyrir ferðalagið.

Hingað til hefur millilandaflug ekki verið í boði á jóladag hér á landi en á því verður nú breyting. Það verður þó aðeins ein ferð í boði en farþegarnir eiga engu að síður að geta verslað í fríhöfn og fengið sér í svanginn fyrir ferðalagið.

Einu sinni á ári liggja allar flugsamgöngur til og frá Íslandi niðri og það er þann 25. desember ár hvert. Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður hins vegar opin á jóladag í ár. Það er þó aðeins ein vél á dagskrá dagsins en sú er á vegum easyJet. Vélin kemur frá Genf í Sviss og lendir í Keflavík um kaffileytið og fer á loft á ný tíu mínútur í fimm.

Hafa ekki sóst eftir jólaferðum

Þrátt fyrir að fáir farþegar muni fara um flugstöðina á jóladag þarf engu að síður að ræsa út starfsfólk flugvallarins og samkvæmt upplýsingum frá Isavia þá er einnig ætlast til að verslanir séu opnar við allar brottfarir. Það er því ljóst að margir starfsmenn Keflavíkurflugvallar þurfa að mæta til vinnu seinnipartinn á jóladag. Í svari frá Isavia segir að þó fyrirtækinu sé umhugað um betri nýtingu mannvirkja þá hafi ekki verið leitast við að auka flug á hátíðardögum yfir jólin.

Rúta Airport Express mun keyra til og frá Keflavíkurflugvelli í tenglum við þessa einu ferð easyJet á jóladag samkvæmt upplýsingum frá Grayline.

Ódýrt að fljúga á jóladag

Þeir sem vilja nýta sér þá nýjung að geta flogið til útlanda á jóladag geta fengið farmiða á rúmar 10 þúsund krónur á heimasíðu easyJet. Við verðið bætist hins vegar farangursgjald.

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …