Samfélagsmiðlar

Gistináttagjald í þriðju hverri borg

Fjögurra manna fjölskylda sem gistir á hóteli í París, Róm eða New York í nokkra daga þarf að greiða aukalega þúsundir króna í lok dvalar.

 

 

 

Fjögurra manna fjölskylda sem gistir á hóteli í París, Róm eða New York í nokkra daga þarf að greiða aukalega þúsundir króna í lok dvalar. Víða eru hótelgestir skattlagðir sérstaklega en ekki á íslenskum gististöðum, jafnvel þó virðisaukaskatturinn sé í lægri kantinum hér á landi.

Það er algengt að hótelgestir borgi sérstakt gistináttagjald í þeim borgum sem flogið er beint til frá Íslandi. Næsta sumar verður til að mynda boðið upp á áætlunarflug frá Keflavík til 59 borga í Evrópu og N-Ameríku og í tuttugu þeirra þurfa hótelgestir að borga sérstakan gistináttaskatt samkvæmt athugun Túrista. Í langflestum tilfellum bætist gjaldið við hótelreikninginn í lok dvalar en stundum er það innifalið í gistiverðinu sem hótelin gefa upp.

Oft er skatturinn lagður á hvern gest og ræðst upphæðin af gæðum hótelsins. Þannig borgar ferðamaður á fjögurra stjörnu hóteli í Róm aukalega um 900 krónur (6 evrur) fyrir hverja nótt. Hjón sem gista í borginni í fimm nætur greiða því um níu þúsund krónur í gistináttagjald. Í New York er skatturinn hins vegar lagður á hvert herbergi og nemur hann um 550 til 1150 krónum (3,5 til 7,5 dollarar) á nótt. Á öðrum stöðum er gjaldið hlutfallslegt, til dæmis í Amsterdam og Berlín þar sem um 5 prósentum er bætt ofan á hótelverðið að viðbættum virðisaukaskatti. Fjármagnið sem fæst með þessari álagningu á hótelgesti er víða eyrnamerkt uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá hver gistináttaskatturinn er í þeim 20 borgum sem flogið er beint til frá Keflavík og hótelgestir eru skattlagðir sérstaklega. Virðisaukaskatturinn er einnig tilgreindur en til samanburðar má geta að skattur á gistingu er 11 prósent hér á landi.

BorgGistináttagjald*Virðisaukaskattur
Amsterdam5,5% ofan á heildarverð.6%
Barcelona115-380kr. (0,75-2,5€) á gest hverja nótt.10%
Basel445kr.(3,5CHF) á gest hverja nótt.3,8%
Berlín5% ofan á heildarverð.7%
Bologna150-600kr. (1-4€) á gest hverja nótt.10%
Brussel330-1340kr. (2,15-8,75€) á herbergi.6%
Genf350-600kr. (2,8-4,75CHF) á gest hverja nótt.3,8%
Halifax2% ofan á heildarverð15%
Hamborg80-600kr. (0,5-4€) á gest hverja nótt.7%
Khania0,5% ofan á heildarverð.6,5%
Lyon160-250kr. (1,1-1,65€) á gest hverja nótt.10%
Mílanó300-750kr. (2-5€) á gest hverja nótt.10%
New York430-930kr. (3,5-7,5$) á herbergi hverja nótt.14,75%
París30-250kr (0,2-1,65€) á gest hverja nótt.10%
Portland2% ofan á heildarverð.12,5%
Róm450-1070kr. (3-7€) á gest hverja nótt.10%
Seattle2% ofan á heildarverð.15,6%
Toronto3% ofan á heildarverð.13%
Vínarborg3,2% ofan á heildarverð10%
Zurich320kr. (2,5CHF) á gest hverja nótt.3,8%

*Upplýsingar um gistináttagjald eru fengnar á hótelbókunarsíðum eða hjá ferðamálaráðum borganna.

 

 

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …