Skarphéðinn Berg tekinn við Ferðaskrifstofu Íslands

uu sida

Fyrrum forstjóri Iceland Express hefur tekið við stjórnartaumunum í einni stærstu ferðaskrifstofu landsins. Fyrrum forstjóri Iceland Express hefur tekið við stjórnartaumunum í einni stærstu ferðaskrifstofu landsins. 
Um áramót urðu framkvæmdastjóraskipti hjá Ferðaskrifstofu Íslands sem rekur meðal annars Úrval Útsýn og Plúsferðir. Margrét Helgadóttir lét af störfum að eigin ósk og við tók Skarphéðinn Berg Steinarsson sem var um árabil forstjóri Iceland Express.

Primera Air í stað WOW

Ferðaskrifstofa Íslands er í eigu Pálma Haraldssonar sem jafnframt var aðaleigandi Iceland Express áður en WOW air keypti rekstur þess félags haustið 2012. Síðan þá hefur WOW air flogið með farþega Úrval Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða til meginlands Spánar en í ár mun Primera Air mun sjá um flugið. 

TILBOÐ: 25% AFSLÁTTUR Á HÓTELUM 

TENGDAR GREINAR: Miklu fleiri sólarlandaferðirFerðum til Tenerife fjölgar