Í janúar var hægt að fljúga frá Keflavíkurflugvelli í 33 borga en á sama tíma í fyrra voru áfangastaðirnir 24 talsins. Í janúar var hægt að fljúga frá Keflavíkurflugvelli í 33 borga en á sama tíma í fyrra voru áfangastaðirnir 24 talsins.
Framboð á flugi héðan eykst hratt á milli ára og líka utan aðalferðamannatímabilsins. Í síðasta mánuði var til að mynda flogið beint frá Keflavík til 33 borga sem er aukning um níu staði frá janúar í fyrra. Aukningin nemur 37,5 prósentum en hafa skal í huga að til sumra borga eru aðeins farnar örfáar ferðir.
Sem fyrr er það London sem er sá áfangastaður sem oftast er flogið til og Kaupmannhöfn er í öðru sæti og Osló í því þriðja.
Vægi þeirra borga sem oftast var flogið til í janúar 2015:
- London: 21,5%
- Kaupmannahöfn: 10,3%
- Osló: 8%
- París: 5,4%
- New York: 4,7%
- Stokkhólmur: 4,1%
- Boston: 4%
- Amsterdam: 3,9%
- Manchester: 3,5%
- Seattle: 3,4%