Verðmæti lendingarleyfa Icelandair í London rýkur upp

heathrow flugtak

Tvisvar sinnum á dag fljúga vélar Icelandair til Heathrow flugvellar. Virði lendingarleyfa félagsins í London er mögulega hátt í sextán milljarðar króna og hefur hækkað umstalsvert síðustu ár.
Flugbrautirnar við Heathrow í London hafa verið fullbókaðar um langt árabil. Þau fyrirtæki sem vilja bjóða upp áætlunarflug til þessa stærsta flugvallar Evrópu, eða fjölga ferðunum þangað, geta það aðeins með því að kaupa komuleyfi af öðrum. Þau eru þó sjaldan boðin til sölu og verðmæti þeirra er því óljóst. Í síðustu viku seldi hins vegar skandinavíska flugfélagið SAS eitt af sínum leyfum og fékk sextíu milljónir dollara fyrir samkvæmt frétt Børsen. Söluverðið jafngildir nærri átta milljörðum króna. Ef leyfi Icelandair eru á álíka eftirsóttum dagspörtum er verðmæti þeirra því hátt í sextán milljarðar. Forsvarsmenn SAS hafa ekki gefið upp á hvaða tíma dags leyfið sem selt var gildir fyrir.

Sextíu prósent hækkun

Fyrir þremur árum var haft eftir forstjóra Heathrow að dæmi væri um að komuleyfi á vellinum hafi verið seld fyrir um fimm milljarða króna. Miðað við upphæðina sem SAS fékk þá hefur verðmæti eignar Icelandair hugsanlega hækkað um sextíu prósent frá því í ársbyrjun 2012. Virðið hefur hins vegar nærri tvöfaldast í dollurum talið.

Ekki til sölu

Um langt skeið var Heathrow eina heimahöfn Icelandair í London en haustið 2012 hóf félagið einnig að bjóða upp á ferðir til Gatwick flugvallar. Í ár mun félagið fljúga þangað allt að sjö sinnum í viku og sem fyrr segir er flogið tvisvar á dag til Heathrow. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að að ekki standi til að selja leyfin á Heathrow og færa starfsemi félagsins í London alfarið yfir á aðra flugvelli.
SMELLTU TIL AÐ GERA VERÐSAMANBURÐ Á GISTINGU Í ÚTLÖNDUM