Núna er Noregur líka fyrir íslenska túrista

preikestolen

Flugmiðar til Noregs eru alla jafna þeir ódýrustu sem í boði eru hér á landi en þrátt fyrir það fækkaði íslenskum ferðamönnum þar í landi umtalsvert í fyrra. Flugmiðar til Noregs eru alla jafna þeir ódýrustu sem í boði eru hér á landi en þrátt fyrir það fækkaði íslenskum ferðamönnum þar í landi umtalsvert í fyrra. Lækkandi gengi norsku krónunnar gæti snúið þeirri þróun við.
Fjöldi íslenskra innflytjenda í Noregi hefur tvöfaldast síðustu ár og eru þeir í dag ríflega átta þúsund talsins. Af blaðaskrifum að dæma eru launin hjá frændþjóðinni eitt aðal aðdráttaraflið en í íslenskum krónum eru þau mun hærri en gerist og gengur hér á landi. Bilið hefur þó minnkað síðustu misseri því norska krónan hefur misst flugið og lækkað um átta prósent í samanburði við þá íslensku í ár. Sú breyting kemur íslenskum ferðamönnum til góða þó auðvitað sé Noregur ennþá dýr áfangastaður.

Miklu færri íslenskir hótelgestir

Á síðasta ári keyptu Íslendingar ríflega fimmtungi færri gistinætur á norskum gististöðum en árið 2013 samkvæmt tölum frá hagstofunni þar í landi. Á sama tíma fjölgaði hins vegar utanlandsferðum Íslendinga um nærri tíund. Vægi Noregs hjá íslenskum túristum drógst þar af leiðandi verulega saman í fyrra. Reyndar gæti ein ástæða þess að íslenskum hótelgestum fækki í Noregi verið sú að sífellt fleiri eiga þar í hús að vernda og borgi fyrir gistingu með flatkökum, hangikjöti og nammi.

Farið til Óslóar oftast ódýrast

Mánaðarlega ber Túristi saman fargjöld til höfuðborga Bretlands, Danmerkur og Noregs. Trekk í trekk er farið til þeirrar norsku það lægsta en þangað fljúga Icelandair, Norwegian og SAS allt árið um kring. Oft bjóða félögin ferðir á vel innan við þrjátíu þúsund sem er stundum miklu minna en ódýrustu fargjöldin til London og Kaupmannahafnar.
Til Bergen má einnig regulega finna ódýra flugmiða og samkvæmt nýlegri athugun var töluvert úrval af farmiðum til þessara næst fjölmennstu borgar Noregs á innan við tuttugu þúsund næstu vikur og fram á sumarið. Icelandair og Norwegian bjóða upp á reglulegt flug til Bergen. Auk þess flýgur íslenska félagið til Stavanger og Þrándheims.

Ef gengið heldur áfram að vænkast íslenskum ferðamönnum í hag og farið til Noregs helst lágt þá gæti farið svo að Íslendingar verði í ár mun fjölmennari á þilfarinu hjá Hurtigruten, milli Hansahúsanna í Bergen og við nýja óperuhúsið í Ósló. Það eru líka teikn á lofti um að verðskrár norska hótela eigi eftir að vera í lægri kantinum því það mun hafa dregið verulega úr heimsóknum viðskiptaferðalanga þangað það sem af er ári. Ef hugurinn stefnir á Noreg þá eru lítur út fyrir að núna sér rétti tíminn til að skella sér.