Samfélagsmiðlar

Flestar kvartanir vegna íslenskra bílaleiga

Stærsti hluti þeirra erinda sem berast ECC á Íslandi snúa að ferðamálum. Viðskiptavinir bílaleiganna eru oftast ósáttir.

vegur stor

Allt að helmingur þeirra mála sem koma á borð Evrópsku neytendaaðstoðarinnar, ECC, hér á landi tengjast bílaleigum. Hlutfallið er þó mismunandi á milli ára. Í flestum tilfellum er um að ræða erlenda ferðamenn sem hafa tekið bíl á leigu hér á landi. Íslendingar leita einnig til skrifstofunnar vegna viðskipta við bílaleigur út í heimi en þau tilfelli eru hins vegar töluvert færri samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu ECC sem rekin er af Neytendasamtökunum.

Margir fá endurgreitt

Oftast snýr ágreiningurinn um tjón á ökutækjum eða reikninga sem berast vegna þeirra. Til dæmis þegar tekið er út af greiðslukorti leigutaka eða innheimt með öðrum hætti. Helmingur allra þeirra kvörtunarmála sem ECC fær til meðferðar enda með endurgreiðslu, ýmist að öllu leyti eða að hluta.

Kostar ekkert að leita aðstoðar

Hlutverk ECC að aðstoða neytendur sem eiga í deilum í tengslum við kaup á vöru eða þjónustu frá fyrirtækjum í öðrum löndum innan EES-svæðisins. Aðstoðin er neytendum að kostnaðarlausu. Í fyrra bárust 106 erindi til íslensku skrifstofunnar og þar af voru kvörtunarmálin 42 að því kemur fram í árskýrslu fyrir árið 2014.
Á heimasíðu Evrópsku neytendaaðstoðarinnar og Neytendasamtakanna er að finna margar gagnlegar ráðleggingar varðandi ferðalög og dæmi um deilumál. Með leyfi frá ECC eru hér birtar leiðbeiningar skrifstofunnar til þeirra sem ætla að leigja bílaleigubíl.

Góð ráð ECC og Neytendasamtakanna um viðskipti við bílaleigur

Fyrir pöntun:

  • Athugaðu vel hvað er innifalið í verðtilboði á bílaleigubílnum. Gættu sérstaklega að því hvort öll gjöld og skattar séu innifaldir. Þegar neytendur skoða hagstæðustu verðin á bílaleigubílum á netinu eru uppgefin verð oft miðuð við lágmarksupphæð án trygginga og aukabúnaðar.
  • Athugaðu hvað sá aukabúnaður (barnabílstólar o.s.frv.) sem þú þarft á að halda á meðan leigu stendur kostar.
  • Athugaðu vel hvernig eldsneytismálum er háttað hjá viðkomandi bílaleigu. Hjá sumum bílaleigum, sérstaklega erlendis, er gert ráð fyrir að leigutaki skili bílaleigubílnum án þess að fylla hann af eldsneyti. Leigutaki er þá í raun að tapa peningnum sem hann notar til að kaupa eldsneyti áður en hann skilar
  • Athugaðu hvaða skilmálar gilda um afpöntun. Það er fátt leiðinlegra en að lenda í því að óvæntar aðstæður leiði til þess að þú þurfir að fresta fríinu og þurfa að auki að greiða fyrir leigu á bílaleigubíl sem aldrei verður notaður.
  • Athugaðu allar takmarkanir á leigusamningnum. Stundum er sett hámark á kílómetrafjölda eða takmarkanir hvað varðar þau lönd sem heimilt er að ferðast til á bílaleigubíl.

Móttaka bílaleigubíls

  • Ef þú bókaðir bílaleigubílinn á netinu er ráðlegt að hafa meðferðis útprentun af bókuninni.
  • Þegar þú undirritar bílaleigusamning á staðnum skaltu ganga úr skugga um að skilmálar samningsins séu þeir sömu og á bókuninni sem þú hefur þegar gert. Mikilvægt er að fá afrit af samningnum og geyma hann ef eitthvað kemur uppá síðar.
  • Vertu viss um að þú skiljir hvað er innifalið í tryggingunum. Margar bílaleigur bjóða nú þeim sem leigja bíla hér á Íslandi að kaupa sérstaka sand- og öskutryggingu. Yfirleitt falla skemmdir á bifreiðum vegna sand- eða öskustorms ekki undir hinar hefðbundnu tryggingar. Því getur verið ráðlegt fyrir leigjanda að óska eftir slíkum tryggingum, séu þær í boði, ef ætla má að mikið sandfok geti orðið þar sem ætlunin er að aka.
  • Rétt er að kanna hvort þú ert með ferða- eða kortatryggingu sem taka sérstaklega á leigu á bílaleigubíl. Slíkar tryggingar geta gert aðrar tryggingar óþarfar og í sumum tilvikum getur það skemmt fyrir að taka sérstaka tryggingu hjá bílaleigunni þar sem þá falla korta- eða ferðatryggingar niður.
  • Spurðu hver sé stefna fyrirtækisins ef bíllinn bilar eða þú lendir í slysi á bílnum.
  • Skoðaðu bílinn með starfsmanni til að athuga hvort það séu einhverjar skemmdir á honum við móttöku. Séu skemmdir á bílnum skaltu gæta þess að þú fáir skriflega yfirlýsingu, undirritaða af starfsmanni, um að skemmdirnar hafi verið til staðar þegar þú leigðir bílinn.

Á meðan á leigu stendur

  • Athugaðu vel á hvernig eldsneyti bíllinn gengur fyrir. Ef sett er bensín á dieselbíl, eða diesel á bensínbíl eru miklar líkur á að bíllin skemmist.
  • Ef bíllinn bilar skaltu hafa samband við bílaleiguna strax og fylgja leiðbeiningum hennar. Ekki fara sjálfur með bílinn á verkstæði án samþykkis bílaleigunnar.
  • Ef þú lendir í slysi á bílnum þá skaltu rita niður nöfn og heimilisföng allra þeirra sem tengdust slysinu. Ef það verða slys á fólki, eða ágreiningur er um sök, þá skaltu hringja á lögregluna og hafa samband við bílaleiguna.

Við skil á bílaleigubíl

  • Reyndu að skila bílaleigubílnum á opnunartíma bílaleigunnar. Þá hefur þú möguleika á að vera viðstaddur skoðun á bílnum og andmælt ef því er haldið fram að þú hafir valdið skemmdum.
  • Starfsmaður bílaleigunnar ætti að gefa út yfirlýsingu um ástand bílaleigubílsins við skil. Bæði þú og starfsmaðurinn ættuð að undirrita hana. Ráðlegt er að geyma eintakið!
  • Ef þú þarf að skila bílaleigubíl utan opnunartíma bílaleigunnar þá skaltu gæta þess að leggja honum í rétt stæði. Einnig getur verið ráðlegt að taka myndir af ástandi bílsins, þá helst með dagsetningu og kílómetrastöðu, til að sanna að bílnum hafi verið skilað í góðu ásigkomulagi.

 

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …