Það lítur út fyrir að breska flugfélagið ætla að fella niður eina af flugleiðum sínum til Íslands. Það gæti fækkað erlendum ferðamönnum um allt að þrettán hundruð á mánuði. Það lítur út fyrir að breska flugfélagið ætla að fella niður eina af flugleiðum sínum til Íslands. Það gæti fækkað erlendum ferðamönnum um allt að þrettán hundruð á mánuði.
Í lok mars árið 2012 hóf easyJet, næststærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, að fljúga til Íslands frá Luton þrisvar í viku. Þremur árum síðar er félagið orðið næst umsvifamesta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli og býður upp á rúmlega hundrað áætlunarferðir hingað í mánuði frá sex breskum flugvöllum og einnig Basel og Genf í Sviss. Allar átta flugleiðirnar eru starfræktar allt árið um kring.
Genf ekki til sölu
Í dag er hægt að bóka vetrarflug með easyJet til allra þessara áfangastaða nema til Genfar. Samkvæmt bókunarvél easyJet verður síðasta ferðin þangað farin 24. október en ekki hefur tekist að fá þessar breytingar staðfestar hjá upplýsingafulltrúum easyJet.
Sjötti hver ferðamaður með easyJet
Í þeim flugvélum sem easyJet nýtir í flugi til og frá Íslandi eru sæti fyrir annars vegar 156 farþega og hins vegar 180. Í mars sl. var sætanýtingin hjá easyJet um 93 prósent en áður hefur komið fram að hlutfall íslenskra farþega hjá félaginu eru rétt um tíund. Það má því áætla að mánaðarlega komi á bilinu tólf til fimmtán þúsund útlendingar til Íslands með easyJet. Tæplega 84 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í síðasta mánuði samkvæmt talningum Ferðamálastofu og það lætur því nærri að sjötti hver túristi hafi flogið hingað með easyJet. Vægi breska félagsins minnkar þó á sumrin því þá fækkar flugferðunum hingað til lands en á sama tíma bæta önnur flugfélag við ferðum.
Frönskum og svissneskum gestum gæti fækkað
Ef ekkert verður út áætlunarflugi easyJet til Genfar næsta vetur má áætla farþegum félagsins á Keflavíkurflugvelli fækki um allt að þrettán hundruð í hverjum mánuði. Genf liggur á landamærum Sviss og Frakklands og því líklegt að báðar þjóðir nýti sér áætlunarflug félagsins hingað til lands og ferðamönnum frá löndum tveimur myndi því fækka hér á landi í kjölfarið nema önnur flugfélög fylli skarð easyJet.