Samfélagsmiðlar

Mun easyJet draga úr Íslandsflugi í haust?

easyJet nytt

Það lítur út fyrir að breska flugfélagið ætla að fella niður eina af flugleiðum sínum til Íslands. Það gæti fækkað erlendum ferðamönnum um allt að þrettán hundruð á mánuði. Það lítur út fyrir að breska flugfélagið ætla að fella niður eina af flugleiðum sínum til Íslands. Það gæti fækkað erlendum ferðamönnum um allt að þrettán hundruð á mánuði.
Í lok mars árið 2012 hóf easyJet, næststærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, að fljúga til Íslands frá Luton þrisvar í viku. Þremur árum síðar er félagið orðið næst umsvifamesta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli og býður upp á rúmlega hundrað áætlunarferðir hingað í mánuði frá sex breskum flugvöllum og einnig Basel og Genf í Sviss. Allar átta flugleiðirnar eru starfræktar allt árið um kring.

Genf ekki til sölu

Í dag er hægt að bóka vetrarflug með easyJet til allra þessara áfangastaða nema til Genfar. Samkvæmt bókunarvél easyJet verður síðasta ferðin þangað farin 24. október en ekki hefur tekist að fá þessar breytingar staðfestar hjá upplýsingafulltrúum easyJet. 

Sjötti hver ferðamaður með easyJet

Í þeim flugvélum sem easyJet nýtir í flugi til og frá Íslandi eru sæti fyrir annars vegar 156 farþega og hins vegar 180. Í mars sl. var sætanýtingin hjá easyJet um 93 prósent en áður hefur komið fram að hlutfall íslenskra farþega hjá félaginu eru rétt um tíund. Það má því áætla að mánaðarlega komi á bilinu tólf til fimmtán þúsund útlendingar til Íslands með easyJet. Tæplega 84 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í síðasta mánuði samkvæmt talningum Ferðamálastofu og það lætur því nærri að sjötti hver túristi hafi flogið hingað með easyJet. Vægi breska félagsins minnkar þó á sumrin því þá fækkar flugferðunum hingað til lands en á sama tíma bæta önnur flugfélag við ferðum.

Frönskum og svissneskum gestum gæti fækkað

Ef ekkert verður út áætlunarflugi easyJet til Genfar næsta vetur má áætla farþegum félagsins á Keflavíkurflugvelli fækki um allt að þrettán hundruð í hverjum mánuði. Genf liggur á landamærum Sviss og Frakklands og því líklegt að báðar þjóðir nýti sér áætlunarflug félagsins hingað til lands og ferðamönnum frá löndum tveimur myndi því fækka hér á landi í kjölfarið nema önnur flugfélög fylli skarð easyJet.

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …