Samfélagsmiðlar

Fjögur erlend flugfélög hefja Íslandsflug um helgina

flugtak 860

Nú er úr helmingi fleiri flugfélögum að velja ef ferðinni er heitið til útlanda á næstunni. Nú er úr helmingi fleiri flugfélögum að velja ef ferðinni er heitið til útlanda á næstunni. Áfangastöðunum fjölgar töluvert þessa fyrstu daga mánaðarins.
Í vetur hafa að jafnaði átta flugfélög boðið upp á reglulegar ferðir til og frá Keflavíkurflugvelli en í gær og í dag bætast fjögur flugfélög við hópinn. Það eru Airberlin og Lufthansa frá Þýskalandi, hið bandaríska Delta og spænska lággjaldaflugfélagið Vueling. Hingað til hafa flugfélögin fjögur hafið sumarvertíð sína hér á landi í byrjun júní  áætlunin hefst mánuði fyrr í ár og endar síðar. Umsvif þeirra allra aukast því töluvert frá því í fyrra. 

Auka samkeppnina á mörgum flugleiðum

Þó flugfélögunum á Keflavíkurflugvelli fjölgi um helming á einni helgi þá bætast aðeins tveir áfangastaðir við leiðakerfi Keflavíkurflugvallar nú í byrjun mánaðar. Það er spænska borgin Barcelona og Dusseldorf í Þýskalandi. Vueling flýgur hingað frá Katalóníu og Airberlin frá Dusseldorf. Áætlunarflug þýska flugfélagsins til Berlínar hefst einnig um helgina en WOW air er eitt um þá flugleið yfir veturinn. Delta og Lufthansa munu veita Icelandair samkeppni um farþega á leið til og frá New York og Frankfurt en þetta verður í fyrsta skipti sem Lufthansa býður upp á áætlunarflug hingað til lands frá stærstu flughöfn Þýskalands. Á næstu vikum bætast fleiri borgir við leiðakerfi Vueling, Airberlin og Lufthansa hér á landi.

Þau íslensku bæta einnig við

Nú um mánaðarmótin hefst líka áætlunarflug Icelandair til Brussel, Billund, Gautaborgar, Zurich og Vancouver og Baltimore-Washington flugvöllur bætist við leiðakerfi WOW air. Síðar í maí fjölgar svo áfangastöðunum enn frekar og nokkur erlend félög hefja þá Íslandsflug sitt á ný eftir vetrarfrí. Hér má sjá hvert verður flogið beint í vor, sumar og haust frá Keflavíkurflugvelli.

Nýtt efni

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …

Í marsmánuði fór fjöldi erlendra ferðamanna í Japan í fyrsta skipti yfir 3 milljónir, samkvæmt tölum sem birtar voru í síðustu viku. Um 2,7 milljónir komu í febrúar. Auðvitað nýtur japönsk ferðaþjónusta nú uppsafnaðrar löngunar erlendra ferðamanna á að heimsækja loks Japan eftir langvarandi lokun og ferðahindranir í tengslum við Covid-19 en það er ekki …

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands var heiðraður á ársfundi Meet in Reykjavik í gær. Hann leiddi til sigurs umsókn Íslands um að fá ráðstefnuna „International Geoscience and Remote Sensing Symposium (IGARSS)“ til Reykjavíkur í júlí 2027. Gert er ráð fyrir að 2.500 erlendir vísindamenn og fagfólk á sviði fjarkönnunar frá öllum heimshornum sæki ráðstefnuna …

United Airlines tilkynntu í gær um betri afkomu en vænst var á öðrum ársfjórðungi. Þetta kemur í framhaldi af því að tapið á fyrsta fjórðungi var minna en óttast hafði verið. Megin ástæða þess að vel gengur er einfaldlega mikill áhugi á ferðalögum. Hlutabréf í United hækkuðu strax í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var …

Japanskir bílaframleiðandur hafa dregist aftur úr nýrri fyrirtækjum á borð við bandaríska Tesla og kínverska BYD í þróun rafbílasmíði. En menn velta því fyrir sér hvort japanskir framleiðendur á borð við Toyota og Nissan verði ekki fljótir að vinna upp það forskot - og jafnvel ná forystu - með þróun nýrrar gerðar rafhlaðna, sem vonir …

„Viltu nýjan bíl? Ef svarið er já, þá þurfum við að finna pening til að kaupa bílinn. Við getum aflað hans með sjávarútvegi en sú grein er takmörkuð og margir vilja setja skorður á fiskeldi. Til að auka framleiðslu á málmum þarf meiri raforku. Þá er það ferðaþjónustan sem er eftir og því þarf að …

Yfir veturinn eru Bretar fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi en fyrstu þrjá mánuði þessa árs innrituðu 109 þúsund breskir farþegar sig í flug frá Keflavíkurflugvelli. Fjöldinn stóð í stað frá sama tíma í fyrra en hins vegar fjölgaði brottförum útlendinga um tíund þessa þrjá mánuði. Efnahagsástandið í Bretlandi kann að skýra að það …