Samfélagsmiðlar

Sitja uppi með hótel- og bílaleigureikninga komi til verkfalls

fle 860

Þeir sem ætla í utanlandsferð á eigin vegum gætu þurft að gera ráðstafanir til að minnka líkurnar á að þurfa að borga fyrir gistingu og bílaleigubíl ef flugsamgöngur stöðvast um mánaðarmótin Þeir sem ætla í utanlandsferð á eigin vegum gætu þurft að gera ráðstafanir til að minnka líkurnar á að þurfa að borga fyrir gistingu og bílaleigubíl ef flugsamgöngur stöðvast um mánaðarmótin.
Starfsmenn í flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli hafa boðað til tveggja sólarhringa verkfalls 31. maí og 1. júní og ótímabundin vinnustöðvun er á dagskrá frá 6. júní. Komi til þessara verkfalla gæti þurft að fresta öllu flugi frá landinu. Flugfarþegar eiga þá rétt á að fá fargjöldin endurgreidd eða flugmiðanum breytt.

Ódýrustu herbergin staðgreidd

Staða ferðalanga er hins vegar verri þegar kemur að bókunum á gistingu, bílaleigubílum og tengiflugi. Alla vega fyrir þann hóp sem er að fara út á eigin vegum en ekki með ferðaskrifstofu. Það er til að mynda algengt að staðgreiða þurfi ódýrustu herbergin á hótelum og fæst upphæðin ekki endurgreidd ef breytingar verða á ferðatilhögun. Þeir sem hafa bókað gistingu með sveigjalegri skilyrðum mega oft afbóka fram á komudag. Hjá bílaleigum má oftast breyta pöntunum og fella niður en þó stundum gegn gjaldi. Þeir sem sjá fram á að þurfa að gera breytingar á ferðaáætlun sinni um mánaðarmótin ættu að kanna hvaða skilyrði gilda hjá þeim aðilum sem bókað var hjá. 

Mismunandi staða varðandi tengiflug

Þó framboð á beinu flugi frá Keflavík hafi aldrei verið meira þá eru líklega ófáir á leið í tengiflug þessa daga sem yfirvofandi vinnustöðvun stendur yfir. Farþegi sem er með flugið héðan og tengiflugið á einum miða er á ábyrgð flugfélagsins eða ferðaskrifstofunnar þar sem miðinn var keyptur. Missi hann af tengifluginu á hann rétt á að komast á áfangastað án aukakostnaðar. Farþegar sem bókuðu flugin tvö í sitthvoru lagi eiga ekki rétt á nýjum miðum samkvæmt upplýsingaþjónustu flugfarþega sem Evrópuráðið starfrækir. Sömu reglur gilda vestanhafs samkvæmt því sem Túristi kemst næst. Ferðatryggingar bæta ólíklega þann fjárhags skaða sem farþegar verða fyrir vegna verkfalla.

Dæmi um ólíka stöðu farþega á leið í tengiflug:
Farþegi A bókar flug frá Keflavík til Madrídar, með millilendingu í Kaupmannahöfn, á einum miða hjá ferðaskrifstofu eða flugfélagi. Missi farþegi af framhaldsfluginu til Madrídar vegna langrar tafar á fluginu frá Íslandi á hann rétt á að honum verði komið áfram á áfangastað án aukakostnaðar. Undir venjulegum kringumstæðum ætti viðkomandi einnig rétt á fébótum vegna seinkunarinnar en ekki þegar vinnudeila er ástæðan fyrir henni.
Farþegi B bókar flug frá Keflavík til Kaupmannahafnar með áætlaðri komu í Kastrup um hádegisbil. Fjórum tímum síðar á viðkomandi bókað flug, á öðrum miða, frá Kaupmannahöfn til Madrídar. Vegna vinnudeilunnar í Keflavík missir farþeginn af tengifluginu. Í Kaupmannahöfn er viðkomandi á eigin vegum og þarf að kaupa nýjan miða til Madrídar. Það gæti þó hjálpað að hafa samband við flugfélagið sem fljúga á með frá Kaupmannahöfn og upplýsa um stöðuna. Flugfélaginu er þó ekki skilt að veita neinn afslátt eða sérþjónustu.

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …