Af höfuðborgum Norðulandanna þá eru íslenskir ferðamenn sennilega sjaldnast á ferðinni í Helsinki. Núna er hins vegar kominn tími á að rétta hlut borgarinnar því að sögn heimamanna hefur stemningin í borginni aldrei verið betri. Finnskt veitingafólk hefur víst sjaldan verið í eins miklu stuði, listasöfnin eru fjölbreytt og í göngufæri hvort við annað og í verslununum má finna urmul af finnskri hönnun sem hefur fyrir löngu öðlast virðulega sess. Um þröngar, hlaðnar götu mjakast svo sporvagnar framhjá tignarlegum kirkjum, fallegum torgum og grænum breiðgötum. Já, Helsinki er sniðin fyrir góða helgarferð og þegar kalt verður í veðri þá er aldrei langt í næstu sauna.
Icelandair býður upp á flug til Helsinki alla daga vikunnar.