Samfélagsmiðlar

Settu saman þitt eigið Rómarflug fyrir 40 til 50 þúsund

colosseum rom

Í sumar er í fyrsta skipti hægt að fljúga beint héðan til höfuðborgar Ítalíu og þeir sem hafa hug á því að nýta sér það komast til Rómar og heim aftur á 40 til 50 þúsund. Í sumar er í fyrsta skipti hægt að fljúga beint héðan til höfuðborgar Ítalíu og þeir sem hafa hug á því að nýta sér það komast til Rómar og heim aftur fyrir innan við 40 þúsund. 
Rómarreisur eru fastur liður á dagskrá ferðaskrifstofanna hér á landi bæði á vorin og haustin. Áætlunarflug til borgarinnar hefur hins vegar ekki verið í boði fyrr en núna því bæði WOW air og Vueling fljúga þangað fram í lok sumars. Samkvæmt athugun Túrista er ennþá töluvert af ódýrum farmiðum í boði en reyndar er skortur á heimflugum á hagstæðu verði fyrstu þrjár vikurnar í ágúst. Hvað sem því líður er samt sem áður hægt að setja saman ódýra ferð til Rómar næstu vikur en stundum getur borgað sig að fljúga út með öðru félaginu en heim með hinu. Sá sem flýgur t.d. út á föstudaginn með WOW og heim með Vueling fimmtudaginn eða föstudaginn í næstu viku borgar um 50 þúsund fyrir farið. Ef lagt er í hann með Vueling aðfaranótt miðvikudagsins næsta og og heim á laugardagskvöld er farið á rúmar 41 þúsund krónur. Svipað verð má finna í lok ágúst og í byrjun september eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Hafa ber í huga að bæði flugfélög rukka farþega fyrir innritaðan farangur og WOW einnig fyrir þyngri handfarangur.

Tilboð á gistingu

Þeir sem ekki hafa í hús að vernda í Róm geta fundið tilboð á gistingu þar í borg á heimasíðum Booking.com og Hotels.com og hér má svo gera verðsamanburð á nær öllum hótelum borgarinnar.

Ódýrustu miðarnir til RómarVerðÓdýrustu heimferðirnar frá RómVerð
17.júlí23.999 kr. með WOW21.júlí23.537 kr. með Vueling
22.júlí17.830 kr. með Vueling25.júlí23.537 kr. með Vueling
24.júlí18.999 kr. með WOW28.júlí26.406 kr. með Vueling
26.júlí23.538 kr. með Vueling24.ágúst20.683 kr. með Vueling
29.júlí20.624 kr. með Vueling27.ágúst17.829 kr. með Vueling
4.ágúst20.683 kr. með Vueling28.ágúst19.915 kr. með WOW
7.ágúst15.999 kr. með WOW31.ágúst17.829 kr. með Vueling
7.ágúst17.829 kr. með Vueling3.september14.976 kr. með Vueling
11.ágúst23.537 kr. með Vueling8.september20.683 kr. með Vueling
14.ágúst23.537 kr. með Vueling12.septmber20.683 kr. með Vueling
25.ágúst26.406 kr. með Vueling  
1.september23.537 kr. með Vueling  
9.september20.683 kr. með Vueling  
13.september23.537 kr. með Vueling  
Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …