Samfélagsmiðlar

Almennilegt kaffi í miðborg Portland

Portland kaffi

Kaffi er ekki bara kaffi og það vita þeir sem reka þessi fallegu kaffihús í miðborg nýjasta áfangastaðar Icelandair í Bandaríkjunum. Kaffi er ekki bara kaffi og það vita þeir sem reka þessi fallegu kaffihús í miðborg nýjasta áfangastaðar Icelandair í Bandaríkjunum.
Heimsókn á Starbucks kryddar ferðalagið ekki á neinn hátt. Öll útibú fyrirtækisins eru nefnilega keimlík, kaffið er miðlungs og kökurnar koma þurrar úr verksmiðjunni. Því miður er varla þverfótandi fyrir útibúum kaffirisans í sumum borgum vestanhafs en svo er ekki í Portland. Ástæðan er líklega sú að Portlandbúar eru þekktir fyrir að vera vandfýsnir og það er líklega grunnurinn að hinu rómaða veitingahúsalífi borgarinnar. Meira að segja íbúar Manhattan flykkjast til Portland til að gera vel við sig í mat og drykk enda sýna tölur ferðamálaráðs borgarinnar að stór hluti innlendra ferðamanna í borginni koma frá Manhattan og nágrenni.
Þeir sem velja sér hótel í miðborg Portland og vilja fá gott kaffi í bollann sinn eru í góðum málum á báðum kaffihúsum Heart Coffee Roasters og eins á þeim fjórum stöðum sem kenndir eru við Barista. Hjá báðum aðilum er ekki bara lagður mikill metnaður í kaffið heldur líka meðlætið og ekki síður útlitið. Og það eina sem kaffihúsin eiga sameiginlegt með Starbucks er verðlagið.
Icelandair hóf nýverið að fljúga til Portland í Oregon fylki

Nýtt efni

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …