Samdráttur í Íslandsferðum Skandinava

Um fjórðungi fleiri erlendir ferðamenn voru á landinu í júní síðastliðnum í samanburði við sama tíma í fyrra. Heimsóknum frá Danmörku, Svíþjóð og Noregi fækkaði hins vegar verulega milli ára og Kínverjar voru fjölmennari en frændþjóðirnar hver fyrir sig. Um fjórðungi fleiri erlendir ferðamenn voru á landinu í júní síðastliðnum í samanburði við sama tíma í fyrra. Heimsóknum frá Danmörku, Svíþjóð og Noregi fækkaði hins vegar verulega milli ára og Kínverjar voru fjölmennari en frændþjóðirnar hver fyrir sig. 
Á fyrri helmingi ársins flugu 517 þúsund erlendir farþegar frá Keflavíkurflugvelli samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Aukningin frá sama tíma í fyrra nemur 28,7 prósentum en athygli vekur að ferðamönnum frá Norðurlöndunum fjölgaði aðeins um 2,8 prósent. Til samanburður var aukningin frá N-Ameríku ríflega 40 prósent. Í júní síðastliðnum varð hins vegar verulegur samdráttur í komum ferðamanna frá Skandinavíu. Þá fækkaði sænskum túristum hér á landi um 16,7 prósent, Dönum um 13,6 prósent og Norðmönnum um 10,2 prósent. Samtals komu hingað 2.223 færri skandinavískir ferðamenn en á sama tíma í fyrra. Fjöldi Finna stóð í stað. Þessi þróun á sér stað þó flugsamgöngur héðan til Norðurlandanna séu tíðari núna því samkvæmt talningu Túrista var boðið upp á 429 áætlunarferðir héðan til Norðurlandanna í júní síðastliðnum en þær voru 397 í júní 2014.

Kínverjar taka framúr Norðurlöndunum

Á sama tíma og ferðamönnum frá frændþjóðunum fækkar þá hefur orðið sprenging í komum Kínverja. Það sem af er ári hefur þeim fjölgað um 78,2 prósent og samtals hafa um 17 þúsund kínverskir ferðamenn heimsótt Ísland í ár. Í júní fjölgaði kínverskum ferðamönnum enn meira eða um 83,5 prósent og voru þeir fjölmennari en ferðamenn frá hverri Norðurlandaþjóð fyrir sig eins og sjá má á línuritinu hér fyrir neðan.