Samfélagsmiðlar

Ódýrari flugmiðar á suðrænar slóðir í lok sumars.

sol a

Ertu að leita að fari til Mallorca, Barcelona, Alicante eða Lyon? Ef svo er þá er núna hægt að gera ágætis kaup á miðum til þessara áfangastaða Ertu að leita að fari til Mallorca, Barcelona, Alicante eða Lyon? Ef svo er þá er núna hægt að gera ágætis kaup á miðum til þessara áfangastaða.
Sumarið er brátt á enda og þá reyna ferðaskrifstofur og flugfélög að koma út síðustu sætunum með því að bjóða þau á lægra verði. Núna er til að mynda hægt að finna flugmiða í ódýrari kantinum til Barcelona og til Rómar má fljúga fyrir tæplega 42 þúsund krónur. Farið til Mallorca og Alicante fæst svo á innan við 40 þúsund.
Túristi hefur skannað markaðinn og hér eru ódýrustu flugmiðarnir fyrir þá sem vilja suður á bóginn í þessar viku eða þeirri næstu. Farangursgjald bætist við hjá WOW og Vueling.

Barcelona

21.-29.ágúst með Sumarferðum: 49.900 kr.
25.-30.ágúst með Vueling: 41.496 kr.
7.-11. september með WOW: 33.997 kr.

Róm

25.-31.agúst með Vueling: 41.773 kr.

Lyon

22.-29.ágúst með WOW: 42.280 kr.

Alicante

25.ágúst-1.september með Vita: 39.500 kr.
21.-28.ágúst með Sumarferðum: 44.900 kr.

Mallorca

3.-10.september með Vita: 39.950 kr.
SMELLTU HÉR TIL AÐ GERA VERÐSAMANBURÐ Á GISTINGU

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …