Allir þeir útlendu áfangastaðir sem flogið er beint til í vetur frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli.
Þrjár nýjar borgir eru á vetrardagskrá Keflavíkurflugvallar í ár en tvær eru dottnir út af prógramminu. Frá Reykjavík er svo flogið til Grænlands en sem fyrr er langmest framboð á flugi til höfuðborgar Bretlands.
Farþegar á Keflavíkurflugvelli geta valið úr áætlunarflugi til 39 áfangastaða í vetur sem álíka framboð og í fyrra. Nú verður hins vegar í fyrsta skipti hægt að fljúga beint héðan til Brussel, Dublin og Gdansk yfir kölduðust mánuðina en aftur móti munu flugsamgöngur milli Íslands og Sviss leggjast nær niður í vetur. Áætlunarflug til Bergen mun takmarkast við stöku ferðir í kringum jól og áramót öfugt við í fyrra þegar ferðirnar voru mun fleiri. Frá Reykjavíkurflugvelli flýgur Flugfélag Íslands til þriggja grænlenskra flugvalla.
Meiri samkeppni
Af þeim þrjátíu og sex flugleiðum sem verða starfræktar frá Keflavíkurflugvelli í vetur þá er aðeins samkeppni um farþegana á ellefu þeirra. Það er meira en í fyrra og munar þar um að WOW air flýgur nú til tveggja bandarískra borga og eins mun þýska flugfélagið Airberlin í fyrsta skipti fljúga milli Íslands og Berlínar yfir vetrarmánuðina. Þetta verður einnig fyrsti vetur Wizz Air hér á landi og breska flugfélagið British Airways hefur Íslandsflug á ný í lok næsta mánaðar.
Hér má sjá allar þær borgir sem flogið verður beint til frá nóvember og fram í lok mars á næsta ári.
Áfangastaðir vetrarins (smellið á borgarheitin til að finna gistingu í hverri borg)
Austurríki
Salzburg: WOW air vikulega frá 19. desember og út febrúar.
Bandaríkin
Boston: Icelandair 1 til 2 ferðir á dag – WOW 5 ferðir í viku.
Chicago: Icelandair 4 sinnum í viku frá 16. mars.
Denver: Icelandair 5 ferðir í viku.
Minneapolis: Icelandair 4 ferðir í viku fram yfir áramót.
New York: Icelandair daglega til JFK og 5 sinnum í viku til Newark.
Orlando: Icelandair 4 ferðir í viku.
Seattle: Icelandair alla daga.
Washington: Icelandair 5 daga í viku – WOW 5 ferðir í viku.
Belgía
Brussel: Icelandair 3 ferðir í viku
Bretland
Belfast: easyJet tvisvar í viku.
Birmingham: Icelandair tvær til fjórar ferðir í viku.
Bristol: easyJet þrisvar í viku
Edinborg: easyJet 2 til 4 ferðir í viku
Glasgow: Icelandair fimm ferðir í viku
London: British Airways 3 ferðir í viku til Heathrow, easyJet daglega til Luton, 4-5 ferðir í viku til Gatwick og tvisvar til Stansted. Icelandair tvisvar á dag til Heathrow og daglega í viku til Gatwick. WOW air 1 til 2 ferðir á dag til Gatwick.
Manchester: easyJet og Icelandair allt að fimm sinnum í viku.
Danmörk
Kaupmannahöfn: Icelandair tvisvar á dag og WOW air 5 til 6 ferðir í viku.
Finnland
Helsinki: Icelandair 4 til 6 ferðir í viku
Frakkland
París: Icelandair 1 til 2 ferðir á dag og WOW air 5 ferðir í viku.
Færeyjar
Þórshöfn: Atlantic Airways á þrisvar í viku (frá Keflavíkurflugvelli)
Grænland
Nuuk: Flugfélag Íslands tvær ferðir í viku frá Reykjavík
Kulusuk: Flugfélag Íslands 1 til 2 ferðir í viku frá Reykjavík.
Ilulissat: Flugfélag Íslands tvisvar í viku í mars frá Reykjavík.
Holland
Amsterdam: Icelandair 1 til 2 ferðir á dag og WOW air tvisvar í viku
Írland
Dublin: WOW air tvær ferðir í viku.
Kanada
Edmonton: Icelandair fjórum sinnum í viku.
Toronto: Icelandair fimm ferðir í viku.
Noregur
Osló: Icelandair átta sinnum í viku. Norwegian þrisvar í viku. SAS allt að daglega.
Pólland
Gdansk: Wizz Air tvær ferðir í viku.
Varsjá: WOW air einu sinni i viku í nóvember og desember.
Spánn:
Alicante: WOW air 1 til 2 ferðir í viku til 9. janúar og aftur frá 18. mars.
Kanarí: Leiguflug Vita og Primera/Heimsferða
Tenerife: Vikulegar brottfarir á vegum Primera/Heimsferða, Vita, Úrval-Útsýn og WOW air.
Sviss
Basel: easyJet tvær ferðir í viku frá 5. feb
Svíþjóð
Stokkhólmur: Icelandair 1 til 2 ferðir á dag
Þýskaland
Berlín: Airberlin tvisvar í viku – WOW air þrisvar.
Frankfurt: Icelandair daglega.
Munchen: Icelandair þrjár til fjórar ferðir í viku.
Auk þessara borga bjóða ferðaskrifstofurnar upp á leiguflug til nokkurra borga og eins verður hægt að fljúga með Icelandair til Bergen, Stavanger og Þrándheims í kringum jól og áramót.