Samfélagsmiðlar

Þau íslensku hótel sem báru sigur úr býtum

reykjavik vetur

Sex íslenskir gististaðir hlutu ein þekktustu verðlaunin sem veitt eru í ferðageiranum. Sex íslenskir gististaðir hlutu ein þekktustu verðlaunin sem veitt eru í ferðageiranum. 
Verðlaunaafhending World Travel Awards fór fram á ítölsku eyjunni Sardaníu um helgina. Verðlaunin eru ein þau virtustu í ferðaþjónustunni og ósjaldan kölluð „Óskarsverðlaun ferðageirans“. Veittar eru viðurkenningar á hinum ýmsu sviðum en í flokki gististaða eru tilnefningarnar bundnar við lönd og voru tuttugu íslensk hótel tilnefnd í sex flokkum. Í ár var það Hótel Borg sem fékk flest stig í flokki almennra hótela en besta hönnunarhótelið er ION á Nesjavöllum eins og sjá má á listanum yfir sigurvegara hér fyrir neðan. 

Sigurvegarar í Íslandsdeild World Travel Awards árið 2015

Besta hönnunarhótelið
ION Luxury Adventure Hotel

Besta hótelið fyrir vinnuferðir

Radisson Blu Saga

Besta hótelið

Hótel Borg

Besti dvalarstaðurinn (
Resort)

Hotel Ranga

Besta íbúðahótelið

Reykjavik4you Apartments

Besta hótel aðsetrið (Hotel residence)

Grand Hotel Reykjavik

Nýtt efni

Því var fagnað í gær að undirrituð hefði verið viljayfirlýsingu um að Íslandshótel og fjárfestar tengdir Skógarböðunum ætluðu að byggja og reka fjögurra stjörnu hótel við Skógarböðin í Eyjafirði gegnt Akureyri. Á væntanlegu baðhóteli verða 120 herbergi. Sjallinn - MYND: Facebook-síða Sjallans Íslandshótel hafa líka haft áform um að reisa hótel í miðbæ Akureyrar, þar …

Kínverski rafbílaframleiðandinn BYD lækkaði verð á bílum sínum á íslenska markaðnum í febrúar s.l. í kjölfar þess að skattaívilnanir til kaupa á nýjum rafbílum féllu niður. Skattafrádrátturinn gat numið allt að 1,3 milljónum króna en nú fæst 900 þúsund króna styrkur frá Orkusjóði í staðinn. Með lægra verði frá Kína gat Vatt, sem er með …

Langvarandi deilur írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair við ítölsk yfirvöld halda áfram. Nú hafa samkeppnisyfirvöld á Ítalíu (AGCM) fyrirskipað Ryanair að aflétta hindrunum á því að ferðaskrifstofur selji flugmiða í ferðir félagsins. AGCM hóf í september síðastliðinn rannsókn á meintri misnotkun félagsins á markaðsráðandi stöðu. Ryanair er umsvifamesta flugfélagið á ítalska ferðamarkaðnum, með um 34 prósenta hlutdeild, …

Play gaf það út í síðasta mánuði að ónefndur hópur meðal stærstu hluthafa flugfélagsins auk annarra fjárfesta hefði skuldbundið sig til að leggja félaginu til 4,5 milljarða króna. Tveir af þeim fjórum lífeyrissjóðum sem eru á lista yfir stærstu hluthafanna sögðust ætla að taka þátt. Rökin fyrir forstjóraskiptunum um síðustu mánaðamót svo þau að Einar …

Lofthelgin yfir Ísrael, Líbanon, Jórdaníu og Írak var lokað á laugardagskvöld eða flug þar um háð miklum takmörkunum. Þetta hafði auðvitað mest áhrif á flug innan svæðisins en líka á yfirflug véla á milli heimsálfa. Í gær var tímabundnum takmörkunum aflétt þegar árásum Írana á skotmörk í Ísrael linnti.  Flugöryggisstofnun Evrópu (The European Union Aviation …

Stjórnendur flugfélagsins Westjet sóttu um lendingartíma á Keflavíkurflugvelli fyrir sumarvertíðina 2020 og þá var ætlunin að fljúga hingað fjórum sinnum í viku frá Toronto, fjölmennustu borg Kanada. Sala á flugmiðum fór þó aldrei í loftið og áður Covid-faraldurinn hófst í ársbyrjun 2020 hafði Westjet gefið út að ekkert yrði að Íslandsfluginu. Stuttu síðar lokuðust landamæri …

Umhverfisstofnun er farin að fikra sig áfram með álagsstýringu á ferðamannastöðum. „Við erum að setja af stað pöntunarkerfi í Landmannalaugum i sumar,“ sagði Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri sviðs náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun, á ársfundi náttúruverndarnefnda nýverið. „Þetta er mjög einföld aðferð,“ sagði Inga Dóra: Ef þú kemur akandi þarftu að bóka stæði og borga fyrir það. …

Stjórnendur rafbílaframleiðandans Tesla leita nú leiða til að draga úr kostnaði og horfa þeir til þess að segja upp 14 þúsund starfsmönnum eða um 10 prósent af vinnuaflinu. Þetta kemur fram í tölvupósti sem forstjóri félagsins, Elon Musk, sendi til starfsfólks samkvæmt frétt sem fagritið Electrek birti í morgun. „Ég hata ekkert meira en þetta …