Símafyrirtækin bjóða sérstaka pakka fyrir þá sem vilja nota farsímann á ferðalagi um Norður-Ameríku. Töluverður verðmunur er hins vegar á þessari þjónustu eftir fyrirtækjum. Símafyrirtækin bjóða sérstaka pakka fyrir þá sem vilja nota farsímann á ferðalagi um Norður-Ameríku. Töluverður verðmunur er hins vegar á þessari þjónustu eftir fyrirtækjum.
Það þekkja það sennilega flestir að það getur verið mjög kostnaðarsamt að nota farsímann mikið í útlöndum. Innan Evrópska efnahagssvæðisins hefur verðskráin þó lækkað hratt síðustu ár eftir að ESB hóf að setja verðþak á símaþjónustu milli aðildarlanda. Öðru máli gegnir um notkunina annars staðar í heiminum en þá er bót í máli að íslensku símafyrirtækin bjóða flest fast verð á símanotkun í N-Ameríku ef notendurnar kaupa sérstakan pakka og greiða fyrir ákveðið daggjald. Þess háttar þjónusta er líka í boði ef ferðast er innan Evrópu.
Umtalsvert ódýrara en almenna verðskráin
Þeir sem eru á leið til Ameríku og sjá fram á að nota símann annars staðar en þar sem frítt netsamband er í boði ættu í flestum tilfellum að spara sér dágóða upphæð með því að bóka þessa útlandaþjónustu símafyrirtækjanna. Til dæmis borga viðskiptavinir Símans 195 krónur á mínútu fyrir að hringja heim frá Bandaríkjunum en mínútuverðið fer niður í 5 krónur ef keyptur er Ferðapakki Símans og hjá Nova lækkar verð á megabæti úr 590 kr. niður í 19,9 krónur. En eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan er verðlagning á þessari þjónustu ólík hjá fjórum stærstu fjarskiptafyrirtækjunum hér á landi. Viðskiptavinir Vodafone borga t.a.m. tvöfalt hærra daggjald en kúnnar hinna símafyrirtækjanna en á móti kemur að netverðið er mun lægra hjá Vodafone. Viðskiptavinir 365 greiða hins vegar lægsta daggjaldið, fá ódýrustu símtölin og borga ekkert fyrir SMS. Þjónusta Símans er á nánast sama verði og hjá 365 en Nova er eina félagið sem rukkar fyrir móttöku símtals. Þess ber að geta að þessir afsláttarpakkar gilda einnig í Kanada nema hjá 365.
Nova | Síminn | 365/Tal | Vodafone | |
Daggjald | 490 kr. | 490 kr. | 480 kr. | 978 kr. |
Hringja í íslenskt númer frá Bandaríkjunum | 20 kr. mínútan + 10 kr. upphafsgjald | 5 kr. mínútan | 4,9 kr. | 19,7 kr. +9,8 kr. upphafsgjald |
Svara símtali í Bandaríkjunum | 20 kr. mínútan | Innifalið | Innifalið | Innifalið |
Senda SMS til Íslands frá Bandaríkjunum | 14 kr. | Innifalið | Innifalið | 14,7 kr. |
Netnotkun | 19,9 kr MB (m.v. 199 kr fyrir 10MB) | 25 kr. MB | 24,5 kr. MB | 11,9 kr. MB (m.v. 178 kr. fyrir 15MB) |