Samfélagsmiðlar

Stærsta flugfélag Spánar til Íslands næsta sumar

iberia express madrid

Áætlunarflug milli Íslands og Madrídar hefur hingað til takmarkast við vikulegar ferðir yfir hásumarið en á því verður mikil breyting á næsta ári. Áætlunarflug milli Íslands og Madrídar hefur hingað til takmarkast við vikulegar ferðir yfir hásumarið en á því verður mikil breyting á næsta ári.
Þrátt fyrir að Spánn hafi um langt skeið verið einn allra vinsælasti áfangastaður íslenskra farþega þá hefur framboð á flugi héðan til höfuðborgar landsins verið af skornum skammti. Eingöngu Icelandair hefur boðið upp á áætlunarferðir þangað en þó aðeins eina ferð í viku frá lokum júní og fram til sumarloka. Næsta sumar geta þeir sem setja stefnuna á Madríd hins vegar valið úr fleiri ferðum því forsvarsmenn Iberia, stærsta flugfélags Spánar, hafa ákveðið að hefja flug hingað til lands næsta sumar. Vélar Iberia munu fljúga hingað tvisvar sinnum í viku frá miðjum júní og fram í miðjan september.
Þetta verður í fyrsta skipti sem Iberia, stærsta flugfélag Spánar, býður upp á flug til Íslands og geta farþegar hér á landi bókað flug áfram til fjölda áfangastaða Iberia um heim allan en félagið mun vera það umsvifamesta í flugi milli Evrópu og S-Ameríku. 

Töluverður verðmunur á lægstu fargjöldum

Ódýrustu farmiðarnir með Iberia, báðar leiðir, kosta um 28 þúsund krónur samkvæmt athugun Túrista en farið hækkar um tæpar 10 þúsund krónur ef ferðast er með farangur. Til samanburðar kostar farmiði meðIcelandair til Madrídar að lágmarki 47.915 krónur en félagið mun fjölga ferðum sínum til borgarinnar næsta sumar og fljúga þangað tvisvar í viku. Það verður því flogið samtals fjórum sinnum í viku til Madrídar frá Keflavíkurflugvelli næsta sumar sem er fjörfalt meira framboð en síðastliðið sumar.

Ein stærsta flugfélagasamsteypa Evrópu eykur umsvifin á Íslandi

Samkvæmt upplýsingum Túrista frá Iberia verða sæti fyrir 171 farþega í vélunum sem nýttar verða í flugið hingað til lands en það verður starfrækt af dótturfélagi Iberia, Iberia Express. Með Íslandsflugi Iberia hafa þrjú af þeim fjórum flugfélögum sem tilheyra samsteypunni In­ternati­onal Air­lines Group bætt Íslandi við leiðakerfi sín. British Airways er stærsta flugfélagið innan IAG og það félag fer fyrstu ferð sína hingað frá London Heathrow á sunnudaginn en þriðja félagið, Vueling, hefur síðustu ár boðið upp á áætlunarferðir hingað frá Barcelona og Róm. IAG tók nýlega yfir írska flugfélagið Air Lingus en ennþá býður það félag ekki upp á flug til Íslands. 

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …