Samfélagsmiðlar

Ódýrustu farmiðarnir til Íslands gætu hækkað um 22 prósent

farthegar oslo

Nýr norskur farþegaskattur mun hækka fargjöldin frá Noregi en flugleiðin til Óslóar er sú þriðja vinsælasta á Keflavíkurflugvelli. Ríkisstjórn Noregs boðar nýjan flugmiðaskatt á næsta ári og innan fluggeirans er megn óánægja með þau áform. Flugleiðin til Óslóar er sú þriðja vinsælasta á Keflavíkurflugvelli og margir munu því finna fyrir hækkuninni hér á landi. 
Í fjárlögum norska ríkisins fyrir næsta ár er reiknað með tekjum upp á rúman milljarð norskra króna vegna nýs farþegaskatts sem byrja á að innheimta þann 1. apríl nk. Gjaldið nemur 80 norskum krónum en ofan á það bætist svo virðisaukaskattur upp á tíund og heildargjaldið verður þar af leiðandi 88 norskar sem samsvarar um 1.340 íslenskum krónum. Skatturinn verður aðeins lagður á þá farþega sem fljúga frá norskum flugvöllum en ekki á þá sem koma til Noregs. Farþegi sem flýgur héðan til Noregs myndi því aðeins borga skattinn á heimleiðinni.

Ódýrustu farmiðarnir hingað rjúka upp

Höfuðborg Noregs er alla jafna sá áfangastaður sem einna oftast er flogið til frá Keflavíkurflugvelli. Í síðasta mánuði voru ferðirnar þangað 90 talsins samkvæmt talningu Túrista og aðeins voru tíðari flugsamgöngur í boði til Lundúna og Kaupmannahafnar. Þrjú flugfélög bjóða upp á áætlunarflug til Óslóar allt árið um kring og hafa verðkannanir Túrista endurtekið sýnt að norska flugfélagið Norwegian býður alla jafna lægstu fargjöldin hingað til og frá norsku höfuðborginni. Ódýrustu flugmiðar Norwegian í Íslandsfluginu kosta 399 norskar en þegar nýi farþegaskatturinn bætist við þá gæti fargjaldið fara upp í að minnsta kosti 487 norskar sem jafngildir 7.420 krónum. Flugfélögin sjálf gætu hins vegar tekið á sig hluta af hækkuninni en forsvarsmenn Norwegian og SAS hafa hins vegar gefið út að skatturinn muni mjög líklega skila sér út í verðlagið að öllu leyti.

Gæti markað endalok flugvalla

Stjórnendur stærstu flugfélaga Noregs eru ekki þeir einu sem hafa gagnrýnt þennan nýja skattstofn því flugvallarstjóri Rygge flugvallar, í útjaðri Óslóar, segir í viðtali við Aftenposten að þetta nýja útspil geti gert út af við flugvöllinn og þar með myndu þúsund manns missa vinnuna. Ein helsta ástæða þess að starfsemi Rygge flugvallar er svona viðkvæm fyrir verðbreytingum er sú að lággjaldaflugfélög eins og Ryanair eru meðal umsvifamestu flugfélaganna á vellinum. Frammámenn í norska fluggeiranum telja líka hættu á að flugleiðir sem í dag standi tæpt muni leggjast af þegar skattahækkunin tekur gildi. Það mun sérstaklega eiga við um innanlandsflugið því þar mun farþegagjaldið leggjast á báða leggi, öfugt við millilandaflugið. Farmiði milli Óslóar og Bergen gæti því hækkað um 176 norskar krónur, eða um nærri 2700 íslenskar krónur, frá og með næsta vori.

Nýtt efni

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …