Með auknu flugi WOW air til Las Palmas og Tenerife tvöfaldast framboð fram á ferðum þangað. „Eitthvað mun undan láta”, segir einn viðmælanda Túrista.
Frá því mars síðastliðnum hefur 200 sæta þota á vegum WOW air flogið alla laugardaga til Tenerife og eftir áramót bætast við þriðjudagsferðir þangað á vegum flugfélagsins. Þar með verða vikulega í boði um 750 sæti í flugvélunum sem fara héðan til Tenerife og þar af eru fjögur hundruð á vegum WOW air. Ferðaskrifstofa Íslands, Heimsferðir og Vita sameinast svo um tvær vélar í viku til Tenerife sem er stærst Kanaríeyjanna. Áður en WOW hóf að fljúga þangað sátu þessar þrjár stærstu ferðaskrifstofur landsins einar að sölu ferða til þessa vinsælla áfangastaðar. Gaman ferðir, dótturfélag WOW air, býður nú einnig upp á pakkaferðir til eyjunnar.
Taka líka að taka slaginn á Kanarí
Viðtökurnar við Tenerifeflugi WOW air hafa verið mjög góðar að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur upplýsingafulltrúa WOW air og því hefur félagið ákveðið að hefja einnig áætlunarflug til Las Palmas á Kanarí (Gran Canaria) í febrúar. Um þessar myndir fljúga þangað tvær þotur í viku með farþega ferðaskrifstofanna þriggja en með tilkomu WOW air mun framboð á ferðum til Las Palmas aukast um helming. Þá verður hægt að fljúga þangað með 550 farþega í hverri viku. Heimildarmenn Túrista eru sammála um að áætlunarflug WOW til Tenerife og nú Kanarí komi sér illa fyrir ferðaskrifstofurnar enda ólíklega markaður hér á landi fyrir svona margar ferðir. Vélarnar eru líka nær eingöngu skipaðar íslenskum ferðalöngum þar sem hingað til hefur eftirspurn eftir Íslandsferðum meðal íbúa Kanaríeyja ekki verið nein. „Eitthvað mun undan láta því markaðurinn fyrir Kanaríferðir hefur ekki stækkað svona mikið frá því í fyrra”, segir einn viðmælanda Túrista innan ferðageirans um þá staðreynd að eftir áramót verður vikulega hægt að ferja um 1300 Íslendinga í viku til Kanaríeyja sem er um tvöfalt meira framboð á flugsætum en á sama tíma í fyrra.
Tímasetning vekur athygli
Það vekur einnig athygli þeirra sem til þekkja að WOW air hefur áætlunarflug til Las Palmas um miðjan febrúar þegar eftirspurn eftir ferðum þangað er í minna í lagi. Stór hluti þeirra Íslendinga sem ferðast til Kanarí fer nefnilega þangað strax eftir áramót og dvelur í fjórar til tólf vikur. „Hingað til hefur ekki verið eins auðvelt að selja ferðir þangað í febrúar”, segir Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands, aðspurð um flug WOW til Kanarí. Hún segist þó fagna auknu flugi en segir framboðið verða í meira lagi með tilkomu flugfélagsins. Þórunn útilokar hins vegar ekki að kaupa sæti í vélum WOW en í dag fljúga farþegar Ferðaskrifstofu Íslands til Kanarí og Tenerife í leiguflugi Icelandair og Primera Air. „Við erum sérfræðingar í að pakka saman flugi og hótelum”, bætir Þórunn við og segir ferðaskrifstofuna nýta sér allt flug til og frá landinu fyrir farþega sína.
Pakkaferðir eða aðeins flug?
Sala á farmiðum með WOW air til Las Palmas hófst í vikunni og í dag er hægt að fá flug hjá félaginu, báðar leiðir með farangri, á tæpar sextíu þúsund krónur í febrúar og fram á vorið. Til samanburðar kostar flugið, eitt og sér, rétt rúmlega hundrað þúsund hjá Ferðaskrifstofu Íslands og Vita. Samanburður á verði flugfélaga og ferðaskrifstofa er hins vegar ekki einfaldur því ferðaskrifstofurnar leggja meginárherslu á pakkaferðir þar sem flug, hótel og fararstjórn er innifalin. Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, dregur þó ekki dul á að þessi viðbót í flugi til Kanaríeyja geti haft áhrif á verðið. „Við mætum samkeppni eins og við höfum ávallt gert með því að bjóða hagstæð verð,” segir hann í svari til Túrista.
Skortur á gistingu á Kanaríeyjum í kortunum
Íslendingar eru ekki einir um að fjölmenna til Kanaríeyja yfir vetrarmánuðina því ferðir þangað njóta einnig mikilla vinsælda meðal frændþjóðanna. Þar hafa sólarlandaferðir til Egyptalands einnig selst vel yfir köldustu mánuðina en vegna ótryggs ástands þar í landi síðustu ár hefur eftirspurnin eftir ferðum til spænska eyjaklasans aukist. Nú hafa bresk og rússnesk stjórnvöld ráðlagt þegnum sínum að halda sig fjarri Egyptalandi og það gæti haft þau áhrif að skortur verði á lausum hótelherbergjum á Kanarí og Tenerife í vetur. Þeir sem kaupa sér aðeins flugmiða til eyjanna á næstunni ættu því að huga að gistingu um leið.
SMELLTU HÉR TIL AÐ GERA VERÐSAMANBURÐ Á HÓTELUM Á KANARÍ OG TENERIFE