Samfélagsmiðlar

Óljós réttur flugfarþega

flug danist soh

Ef slæmt veður eða verkföll valda töfum á flugi þá er ólíklegt að farþegar eigi rétt á þeim bótum en flugfélögin geta líka reynt að skýla sér á bakvið þessar háttar aðstæður. Ef slæmt veður eða verkföll valda töfum á flugi þá er ólíklegt að farþegar eigi rétt á þeim bótum en flugfélögin geta líka reynt að skýla sér á bakvið þessar háttar aðstæður.
Það hafa vafalítið allir flugfarþegar orðið fyrir því oftar en einu sinni að fluginu þeirra seinkar og þeir komast ekki á áfangastað fyrir nokkrum tímum seinna. Þeir sem eiga bókað tengiflug út í heimi eiga þá í hættu að missa af næstu vél og þurfa jafnvel að kaupa sér nýjan miða nema flugin séu bæði á einum farseðli. 
Reglur Evrópusambandsins, sem ná einnig til flugfélaga hér á landi, kveða þó á um að farþegar eigi rétt á fébótum ef seinkunin nemur meira en þremur tímum. Upphæðin ræðst af lengd flugferðarinnar og sá sem ætlar að fljúga innanlands eða t.d. til Grænlands, Færeyja eða Skotlands á rétt á um 35 þúsund krónum (250 evrur) ef ferðinni seinkar svo mikið. Rúmlega þriggja tíma töf á flugi yfir á meginland Evrópu gefur rétt á bótum upp á 56 þúsund kr. (400 evrur). Hærri verða bæturnar ekki vegna flugferða innan EES-svæðisins. Ef flogið er til landa utan þess, t.d. til Tyrklands eða N-Ameríku, þá eru bæturnar allt að 84 þúsund kr. (600 evrur) ef seinkunin er meira en fjórir tímar. Flugfélag gæti því þurft að greiða á bilinu 6 til 15 milljónir króna í skaðabætur ef farþegaþota með 180 farþega tefst að lágmarki um þrjá til fjóra tíma eða ef för hennar er aflýst. Reglur ESB ná til flugfélaga á Evrópska efnahagssvæðinu og til þeirra flugferða sem hefjast innan svæðisins. 

Hvað eru óviðráðanlegar aðstæður?

Það er því um umtalsverðar fjárhæðir að ræða og það reynist þess vegna flugfarþegum oft erfitt að sækja skaðabætur. Ein helsta ástæðan fyrir því er sú að bótaskylda flugfélaga fellur niður ef seinkunin er vegna óviðráðanlegra orsaka og flugfélögin skýla sér því oftast á bakvið þá skýringu. Ótryggt stjórnmálaástand, slæm veðurskilyrði og verkföll teljast til þess háttar aðstæðna en ekki bilanir og önnur tæknileg vandamál á flugvélum og flughöfnum. Og reyndar eru yfirvöld innan Evrópulandanna ekki samála um hvort telja eigi vinnustöðvanir óviðráðanlegar aðstæður því til þeirra er oftast boðað með löngum fyrirvara (sjá nánar). 
En þar sem flugfarþegar virðast almennt vera seinþreyttir til vandræða og því hefur verið haldið fram að aðeins sjö af hverjum hundrað farþegum fái að lokum þær fébætur sem þeir eiga rétt á. 

Aðstoð fyrir flugfarþega  

Til að sækja bætur til flugfélaga geta farþegar sent inn kröfur til flugfélaganna sjálfra en það ferli getur reynst seinlegt. Ef niðurstaða fæst ekki í málið eða farþegi er ósáttur við afgreiðslu flugfélagsins er hægt að leita til Samgöngustofu. Það eru einnig fyrirtæki sem sérhæfa sig í svona málum og eitt þeirra er AirHelp sem tekur að sér skaðabótamál fyrir farþega. Félagið tekur fjórðung af bótafénu í þóknun. Annað fyrirtæki á þessu sviði er GreenClaim

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …