Samfélagsmiðlar

Segir farmiða selda langt undir kostnaðarverði

strond sarah machtsachen

Flugferðir til Kanaríeyja verða mun tíðari eftir áramót og það hefur áhrif á verðlagninguna sem er óvenjuleg um þessar mundir. Flugferðir til Kanaríeyja verða mun tíðari eftir áramót og það hefur áhrif á verðlagninguna sem er óvenjuleg um þessar mundir.
Í lok síðasta vetrar hóf WOW air að fljúga vikulega til Tenerife og eftir áramót verða ferðirnar tvær í viku. Auk þess hefur félagið áætlunarflug til Las Palmas á Kanarí. Með þessum þremur vikulegu ferðum WOW air tvöfaldast framboð á flugi héðan til spænska eyjaklasans og í hverjum mánuði verða sæti fyrir um 5000 farþega í vélunum sem halda þangað frá Keflavíkurflugvelli.

Ekki hægt að selja marga miða svona ódýrt

Þessi mikla viðbót á flugsamgöngum hefur haft töluverð áhrif á farmiðaverðið til eyjanna tveggja eins og sést þegar fargjöldin eftir áramót eru skoðuð. Þann 26. janúar nk. fljúga til að mynda þrjár þotur frá Keflavíkurflugvelli til Tenerife. Í þeim verða sæti fyrir um 550 farþega og hluti sætanna er, eins og gefur að skilja, nú þegar frátekinn. Verðmunurinn á þeim óseldu nemur hins vegar tugum þúsunda króna jafnvel þó um sé að ræða sæti í sömu flugferðirnar líkt og Túristi greindi frá í fyrradag. Þannig borgar sá sem bókar miða í leiguflug Icelandair 26.janúar til 2. febrúar 44.500 krónur hjá Sumarferðum og Úrval-Útsýn en 69.900 krónur hjá Vita. Verðið hjá Vita var reyndar 84.900 þegar Túristi birti verðsamanburð sinn á miðvikudag.
Systurfélögin Primera Air og Heimsferðir rukka líka ólíkt verð fyrir sætin í sína sameiginlegu ferð þessa sömu daga. Miðinn hjá því síðarnefnda kostar 79.900 en 35.990 kr. hjá Primera Air. Þar bætist reyndar 9.800 króna farangursgjald við farmiðaverðið. Þriðja ferð dagsins er á vegum WOW air og Gaman ferða og hjá WOW kostar farið 35.807 krónur en 45.805 krónur ef einnig er bókað fyrir tösku. Gaman ferðir bjóða hins vegar aðeins pakkaferðir en ekki staka flugmiða.
Þessi lágu fargjöld eru hins vegar ekki bundin við ferðir í lok janúar því þau má finna á fjölda dagsetninga eftir áramót og fram að páskum. Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, segir að það sé ljóst að þessi lægstu fargjöld, sem nú eru í boði, séu langt undir kostnaðarverði og að enginn geti selt mörg sæti svona ódýrt.

Tvöfalt framboð

Helsta skýringin á þessum óvenjulágu fargjöldum er sú að með tilkomu áætlunarflugs WOW air til Tenerife og Kanarí hefur framboð á ferðum þangað nær tvöfaldast. Hjá WOW air í dag er töluvert úrval af flugmiðum til eyjanna tveggja á um 40 þúsund krónur en Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, vill ekki meina að lágu fargjöldin endurspegli dræmar viðtökur við flugi félagsins til Kanarí og Tenerife. „Salan hefur gengið mjög vel og að vanda er það markmið okkar að bjóða ávallt ódýrustu fargjöldin”, segir Svanhvít.

Saga Class sætin vinsæl

Öfugt við Primera Air og WOW air þá selja ferðaskrifstofurnar ekki aðeins flug heldur einnig pakkaferðir með hóteli og einnig hafa þær oftast íslenska fararstjóra á sínum snærum. Guðrún Sigurgeirsdóttir hjá Vita segir að þar sé áherslan fyrst og fremst á þess háttar pakkaferðir. Eftirspurnin hafi verið góð og margar brottfarir að seljast upp og til að mynda séu nær öll sæti á Saga Class til Tenerife og Kanarí í vetur uppbókuð.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …