Samfélagsmiðlar

Íslendingar sjöttu bestu gestgjafar í heimi

airbnb a

Nærri þrefalt fleiri bókuðu gistingu hér á landi í gegnum Airbnb í fyrra en árið á undan og allur þessi fjöldi lætur oftar en ekki vel af móttökunum. Nærri þrefalt fleiri bókuðu gistingu hér á landi í gegnum Airbnb í fyrra en árið á undan og allur þessi fjöldi lætur oftar en ekki vel af móttökunum.
Nú má finna hátt í 4 þúsund íslensk gistirými á vef Airbnb og fjölgaði gestum fyrirtækisins hér á landi um 156 prósent milli ára. Þeir sem bóka gistingu hjá Airbnb gefst kostur á að gefa leigusölunum einkunn í lok dvalar og þeir íslensku fá almennt góða umsögn samkvæmt upplýsingum frá Airbnb. Og reyndar svo góða að á síðasta ári voru það aðeins gestgjafar í fimm öðrum löndum sem fengu hærri meðaleinkunn en þeir íslensku eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Athygli vekur að Norðurlöndin fimm komast öll á topp tíu yfir þau lönd þar sem heimamenn fá bestu meðmælin. 

Airbnb með fleiri rými en hótelkeðjurnar

Miðað við hina frægu höfðatölu þá er útbreiðsla Airbnb miklu meiri hér á landi en hjá frændþjóðunum. Hlutfallslega eru nefnilega um sjöfalt fleiri íslensk gistirými en norsk í boði hjá Airbnb og fjöldinn hér er þrefaldur á við framboðið í Danmörku. Umsvif Airbnb á Íslandi eru orðin það mikil að fyrirtækið hefur á sínum snærum umtalsvert fleiri herbergi en þrjár stærstu hótelkeðjur landsins samanlagt líkt og Túristi greindi frá. Það eru þó ekki bara erlendir ferðamenn hér á landi sem nýta sér þjónustu Airbnb því í fyrra tvöfaldaðist nærri því sá fjöldi íslenskra túrista sem bókaði gistingu hjá Airbnb í útlöndum samkvæmt svari fyrirtækisins við fyrirspurn Túrista.

Þau lönd þar sem gestgjafar fá bestu meðmælin á Airbnb:
1. Nýja Sjáland
2. Serbía
3. Noregur
4. Svíþjóð
5. Bandaríkin
6. Ísland
7. Írland
8. Kanada
9. Finnland
10. Danmörk

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …