Samfélagsmiðlar

Sérstakt gjald á farþega gæti dregið úr flugumferð til landsins

Í  Noregi mætir hækkun farþegagjalda mikilli andstöðu og sambærileg gjaldtaka hér á landi gæti því haft afleiðingar á framboð á flugi. Í  Noregi mætir hækkun farþegagjalda mikilli andstöðu og sambærileg gjaldtaka hér á landi gæti því haft afleiðingar á framboð á flugi.
Hækkun komugjalda á flugfarþega er ein þeirra leiða sem reglulega er rædd til að auka tekjur ríkisins af ferðamönnum. Fyrr í þessum mánuði lagði til að mynda Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár og fyrrum stjórnarfomaður Íslandsstofu, til að allir ferðamenn sem koma til landsins myndu greiða sérstaklega þrjú til fimm þúsund króna framlag í sérstakan sjóð. Guðni Ágústsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, var á sömu línu í aðsendri grein í Morgunblaðinu og í frétt blaðsins í síðustu viku kom fram að 5000 króna gjald á erlenda ferðamenn hefði getað skilað um 6,5 milljörðum á síðasta ári. Bandaríska vegabréfaskráningin ESTA var nefnd sem fyrirmynd að þessu nýja íslenska gjaldi. Þess ber þó að geta að ESTA gjaldið er nærri þrefalt lægra eða um 1800 krónur (14 dollarar). Það er því ólíku saman að jafna.

Tugprósenta hækkun á lægstu fargjöldum

Átján erlend flugfélög munu bjóða upp á reglulegt áætlunarflug til Íslands í sumar og hafa þau aldrei verið jafn mörg. Farþegar þeirra eru í langflestum tilfellum erlendir ferðamenn á meðan stór hluti farþega Icelandair og WOW air eru skiptifarþegar sem aðeins millilenda á Keflavíkurflugvelli. Nýtt gjald upp á nokkur þúsund krónur myndi því hafa veruleg áhrif á farmiðaverð erlendu flugfélaganna og sem dæmi má nefna þá kosta ódýrustu miðarnir hjá sumum þeirra til Íslands innan við tíu þúsund krónur. Lægstu fargjöldin myndu þá hækka um tugi prósenta ef hugmyndir um 3 til 5 þúsund króna aukagjald á flugfarþega yrðu ofan á.

Hefði eyðileggjandi áhrif

„Svona gjaldtaka gæti haft eyðileggjandi áhrif á íslenska ferðaþjónustu og almennt leitt til þess að framboð á flugi til landsins dragist saman. Þetta gæti því líka haft áhrif á framboð okkar en við bíðum og sjáum hvernig þessi umræða endar,” segir Anna Nielsen, upplýsingafulltrúi SAS, aðspurð um áhrif þess að leggja á komugjöld lík þeim sem rædd hafa verið síðustu vikur. SAS verður næst umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landi í ár og hefur til að mynda daglegt flug hingað frá Kaupmannahöfn nú í mars. Breska lággjaldaflugfélagið easyJet hefur síðustu fjögur ár verið stórtækt í Íslandsflugi og m.a. haft á boðstólum farmiða, til og frá landinu, sem kosta innan við þrjú þúsund krónur. Hið nýja komu- eða náttúrugjald myndi þá í sumum tilvikum vera hærra en tilboðsverð félagsins. „Reykjavík er ört vaxandi áfangastaður fyrir easyJet og við vinnum náið með ferðamálayfirvöldum á Íslandi. Við myndum fara í gegnum allar tillögur sem myndu hugsanlega hafa áhrif á farþega okkar eða starfsemi,” segir Andy Cockburn, talsmaður easyJet, um hugmyndir um nýtt farþegagjald hér á landi. Túristi leitaði viðbragða hjá nokkrum öðrum erlendum flugfélögum en talsmenn þeirra sögðust ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu.

Umdeild leið í Noregi

Í fjárlögum norska ríkisins í ár er reiknað með tekjum upp á rúman milljarð norskra króna vegna nýs farþegaskatts sem byrja á að innheimta þann 1. apríl nk. Gjaldið nemur 80 norskum krónum en ofan á það bætist svo virðisaukaskattur upp á tíund og heildargjaldið verður þar af leiðandi 88 norskar sem samsvarar um 1.300 íslenskum krónum. Forsvarsmenn stærstu flugfélaganna þar í landi hafa mótmælt hækkun gjalda og boðað að flugleiðir sem ekki eru nægjanlega ábatasamar verði lagðar niður. Forsvarsmenn Avinor, sem sér um rekstur flugvalla í eigu norska ríkisins, telja að gjaldið gæti orðið til þess að flugfélög í Skandinavíu flytji hluti af starfsemi sinni til nágrannalandanna þar sem gjöldin eru lægri. Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, hafa í umsögn sinni um komugjöldin sagt þau stríða gegn alþjóðlegum samþykktum og ferðamálasamtök Noregs hafa einnig mótmælt þeim. Gjöldin eru líka talin hafa mikil áhrif á áætlanir lággjaldaflugfélaga til Noregs og til að mynda hefur forstjóri Rygge flugvallar, í útjaðri Ósló, sagt að gjaldið gæti gert út af við rekstur flugvallarins þar sem lággjaldaflugfélög standa undir bróðurparti flugumferðarinnar. Nýir farþegaskatturinn í Noregi mætir s.s. mikilli andstöðu í flug- og ferðageiranum en hann er þó nokkru lægri en það gjald sem lagt hefur verið til að sett verði á hér á landi. 

Hófstillt gistináttagjald

Líkt og Túristi greindi frá í síðustu helgi á er gistináttaskatturinn hér á landi lágur í samanburði við það sem þekkist víða annar staðar. Hækkun á skattinum gæti hins vegar dregið úr eftirspurn eftir Íslandsferðum því gistingin yrði dýrari. Kosturinn við gistináttaskattinn er hins vegar sá að þá borga þeir mest sem dvelja á lengst á landinu en með komugjöldum myndi farþegi á leið hingað í helgarferð borga jafn mikið og sá sem ferðast um Ísland í þrjár vikur. Komugjöld myndu einnig verða til þess að farmiðar almennt myndu hækka og það kæmi líka niður á íslenskum farþegum.

Nýtt efni

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …