Samfélagsmiðlar

Sólarlandaferðir sumarsins

strond sarah machtsachen

Sem fyrr eru Spánarstrendur mjög áberandi á sumardagskrá stærstu ferðaskrifstofa landsins eins og hér má sjá. Sem fyrr eru Spánarstrendur mjög áberandi á sumardagskrá stærstu ferðaskrifstofa landsins. Hinir kostirnir eru Krít og Antalya í Tyrklandi.
Yfir sumarmánuðina í fyrra flugu ríflega 135 þúsund íslenskir farþegar frá Keflavíkurflugvelli og fjölgaði þeim um tíund frá þarsíðasta sumri. Hversu stór hluti þessara Íslendinga var á leið í sólarlandaferð er ekki vitað en væntanlega hafa þeir verið fjölmargir því framboð á klassískum pakkaferðum í sólina jókst töluvert síðasta sumar og ekki hefur dregið úr því í ár. Í sumar verður til að mynda flogið oftar til Tenerife en áður og í fyrsta skipti í áratug gefst færi á sumarferðum til Kanarí. Hingað til hafa heimsóknir Íslendinga þangað einskorðast við vetrarmánuðina.  

Eingöngu þrjú lönd á boðstólum

Kanarí og Tenerife eru hins vegar ekki einu spænsku eyjurnar sem komast á blað hjá íslensku ferðaskrifstofunum því Mallorca-ferðir eru í boði á ný eftir nokkurra ára fjarveru úr sölubæklingum ferðaskrifstofa. Mallorca þótti nefnilega of dýr fyrir íslenska ferðalanga árin eftir hrun en komst á kortið á ný í fyrra. Í sumar munu þrjár stærstu ferðaskrifstofur landsins, Heimsferðir, Vita og Úrval-Útsýn bjóða upp á vikulegar ferðir þangað en áfangastaðir þessara þriggja ferðaskrifstofa er margir hverjir þeir sömu eins og sjá má á kortinu hér fyrir neðan. Úrval-Útsýn heldur sig við spænska sólarstaði í ár og sömu sögu er að segja um Gaman ferðir en Vita og Heimsferðir bjóða einnig upp á ferðir til Krítar. Nazar er hins vegar eitt um ferðir til Tyrklands í ár en þessi norræna ferðaskrifstofa er með úrval af ferðum á strendur í nágrenni við Antalya. 
Hér fyrir neðan má sjá þá sólarstaði sem flogið verður reglulega til í sumar en auk þessara ferða eru í boði stakar ferðir á hina og þessa staði.

Nýtt efni
MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …

MYND: ÓJ

Kínverskir ferðamenn hafa verið töluvert áberandi í Reykjavík og víðar um land í vor. Auðvitað er fólk af kínverskum uppruna búsett um allan heim og eitthvað af því fer í Íslandsferðir en þeim hefur snarfjölgað sem koma hingað alla leið frá Alþýðulýðveldinu Kína. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli komu hingað í marsmánuði 8.642 Kínverjar og …

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …