Samfélagsmiðlar

Bestu strandhótelin við Miðjarðarhafið

strond sarah machtsachen

Sum kosta helling en önnur á viðráðanlegu verði. Góð gisting kostar sitt og það á auðvitað líka við þegar haldið er á sólarströnd en listanum er líka nokkur hótel á viðráðanlegu verði.
Að búa á glæsilegu hóteli við fallega strandlengju er eitthvað sem sennilega allir væru til í að fá að upplifa við tækifæri. Gallinn er hins vegar sá að þess háttar gististaðir eru í dýrari kantinum og sérstaklega við Miðjarðarhafið sem lengi hefur laðað til sín velmegandi Evrópubúa. Þeir sem eru hins vegar til í að láta fínheitin eftir sér ættu að vera í góðum málum á hótelunum sem blaðamenn The Telegraph segja vera þau bestu við Miðjarðarhafið og blessunarlega eru þar nokkur sem kosta ekki aleiguna. Hér má sjá umsagnir Telegraph um hótelin (með því að smella á hótelheitið má gera samanburð á gistingunni á hverju hóteli).

Spánn
Hotel Tamariu, Costa Brava
ME Mallorca, Mallorca
Grand Palladium White Island, Ibiza

Frakkland
Hotel Le Negresco, Nice
La Pérouse, Nice
Le Petit Nice, Marseille
Hotel du Cap Eden Roc, Cap d’Antibes
Mas du Langoustier, Ile de Porquerolles

Ítalía
Le Dune, Piscinas, Sardinía
JK Place, Capri
Capofaro Resort, Salina, Sardinía
Belmond Villa Sant’Andrea, Taormina, Sikiley

Króatía
Hotel Mlini, Dubrovnik
Hotel Podstine, Hvar
Hotel Lone
Hotel Adriatic, Rovinj

Grikkland
St Nicholas Bay, Krít
Lindos Blu, Ródos
Delfino Blu, Korfu

Kýpur
Anassa, Asprókremnos

Tyrkland
Olympos Lodge, Antalya
Mandarin Oriental, Bodrum
D-Hotel Maris, Marmaris

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …