Samfélagsmiðlar

Gatwick aðalsamgönguæðin fyrir Íslandsflug

gatwick braut

Nærri þriðjungi fleiri farþegar sitja í þotunum sem fljúga héðan til Gatwick flugvallar í London en til Heathrow. Bilið gæti hins vegar minnkað á ný. Nærri þriðjungi fleiri farþegar sitja í þotunum sem fljúga héðan til Gatwick flugvallar í London en til Heathrow. Bilið gæti hins vegar minnkað á ný. 
Flugbrautirnar við London Heathrow, stærstu flughöfn Evrópu, hafa lengi verið fullskipaðar. Flugfélög sem ætla bæta vellinum við leiðakerfi sitt hafa því þurft að kaupa lendingarleyfi af þeim félögum sem fyrir eru. Þess háttar fjárfesting getur hlaupið á milljörðum króna líkt og nýleg dæmi eru um en Icelandair á tvo afgreiðslutíma á Heathrow og flug félagsins þangað hafa gert það að verkum að Heathrow hefur um mjög langt skeið verið sá breski flugvöllur sem flestir farþegar fara um á leið sinni milli Íslands og Bretlands. Á því varð hins vegar breyting í hittifyrra þegar farþegafjöldinn í Íslandsflugi til og frá London Gatwick flugvelli fór fram úr fjölda farþega Icelandair á Heathrow. Plássleysið á síðarnefnda flugvellinum hefur nefnilega gert það að verkum að umferðin um Gatwick hefur aukist og til að mynda bjóða easyJet, Icelandair og WOW air öll upp á nánast daglegar ferðir þangað frá Keflavíkurflugvelli. Nýtt áætlunarflug British Airways frá Heathrow til Íslands, sem hófst sl. haust, breytti þar litlu um því eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan þá flugu 313 þúsund farþegar milli Íslands og Bretlands í gegnum Gatwick í fyrra en 240 þúsund fóru um Heathrow. Munurinn er um 30 prósent en það bil gæti hins vegar minnkað í ár ef Icelandair nýtir nýjar breiðþotur sínar í auknum mæli í flug til Heathrow og á sama tíma ætla forsvarsmenn British Airways að stórauka flug til hingað til lands líkt og Túristi greindi frá.

Eiga langt í land með að ná Kastrup

Í dag er flogið héðan til fjögurra flugvalla í nágrenni við London og áætlunarflugið þangað stendur undir um fimmtungi af allri umferð um Keflavíkurflugvöll. Það er meira vægi en nokkur önnur flugleið hefur en næst á eftir kemur flugið til Kaupmannahafnar. Þar í borg er hins vegar aðeins ein flughöfn og í fyrra fóru um 437 þúsund farþegar á milli Keflavíkurflugvallar og Kaupmannahafnarflugvallar eða 134 þúsund fleiri en nýttu sér Íslandsflugið til og frá Gatwick. Hins vegar fóru samtals 658.471 farþegar milli Íslands og flughafnanna fjögurra við London sem flogið er til frá Keflavíkurflugvelli.

Mikil viðbót í Manchester

Um árabil var svo lítil eftirspurn eftir ferðum milli Íslands og Bretlands að Icelandair flaug til Manchester og Glasgow í sömu ferðinni. Þeir sem ætluðu til skosku borgarinnar urðu þá að bíða í þotunni í Manchester á meðan farþegar á leið þangað fóru frá borði og aðrir komu inn. Icelandair hætti þessu hringflugi milli Íslands, Englands og Skotlands haustið 2011 og síðan þá hefur framboð á flugi héðan til Manchester og Glasgow aukist verulega. Auk þess hóf easyJet að fljúga hingað frá Manchester og frá árinu 2013 hefur umferðin þaðan, til og frá Íslandi, aukist úr 65 þúsund farþegum í ríflega 110 þúsund eins og sjá má hér fyrir neðan. Útlit er fyrir frekari aukningu næsta vetur því bæði easyJet og Icelandair ætla að fjölga ferðum miðað við núverandi áætlanir. Íslenska félagið ætlar einnig að bæta í flugið til Glasgow og fljúga þangað daglega frá og með september næstkomandi.

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …