Nærri þriðjungi fleiri farþegar sitja í þotunum sem fljúga héðan til Gatwick flugvallar í London en til Heathrow. Bilið gæti hins vegar minnkað á ný. Nærri þriðjungi fleiri farþegar sitja í þotunum sem fljúga héðan til Gatwick flugvallar í London en til Heathrow. Bilið gæti hins vegar minnkað á ný.
Flugbrautirnar við London Heathrow, stærstu flughöfn Evrópu, hafa lengi verið fullskipaðar. Flugfélög sem ætla bæta vellinum við leiðakerfi sitt hafa því þurft að kaupa lendingarleyfi af þeim félögum sem fyrir eru. Þess háttar fjárfesting getur hlaupið á milljörðum króna líkt og nýleg dæmi eru um en Icelandair á tvo afgreiðslutíma á Heathrow og flug félagsins þangað hafa gert það að verkum að Heathrow hefur um mjög langt skeið verið sá breski flugvöllur sem flestir farþegar fara um á leið sinni milli Íslands og Bretlands. Á því varð hins vegar breyting í hittifyrra þegar farþegafjöldinn í Íslandsflugi til og frá London Gatwick flugvelli fór fram úr fjölda farþega Icelandair á Heathrow. Plássleysið á síðarnefnda flugvellinum hefur nefnilega gert það að verkum að umferðin um Gatwick hefur aukist og til að mynda bjóða easyJet, Icelandair og WOW air öll upp á nánast daglegar ferðir þangað frá Keflavíkurflugvelli. Nýtt áætlunarflug British Airways frá Heathrow til Íslands, sem hófst sl. haust, breytti þar litlu um því eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan þá flugu 313 þúsund farþegar milli Íslands og Bretlands í gegnum Gatwick í fyrra en 240 þúsund fóru um Heathrow. Munurinn er um 30 prósent en það bil gæti hins vegar minnkað í ár ef Icelandair nýtir nýjar breiðþotur sínar í auknum mæli í flug til Heathrow og á sama tíma ætla forsvarsmenn British Airways að stórauka flug til hingað til lands líkt og Túristi greindi frá.
Eiga langt í land með að ná Kastrup
Í dag er flogið héðan til fjögurra flugvalla í nágrenni við London og áætlunarflugið þangað stendur undir um fimmtungi af allri umferð um Keflavíkurflugvöll. Það er meira vægi en nokkur önnur flugleið hefur en næst á eftir kemur flugið til Kaupmannahafnar. Þar í borg er hins vegar aðeins ein flughöfn og í fyrra fóru um 437 þúsund farþegar á milli Keflavíkurflugvallar og Kaupmannahafnarflugvallar eða 134 þúsund fleiri en nýttu sér Íslandsflugið til og frá Gatwick. Hins vegar fóru samtals 658.471 farþegar milli Íslands og flughafnanna fjögurra við London sem flogið er til frá Keflavíkurflugvelli.
Mikil viðbót í Manchester
Um árabil var svo lítil eftirspurn eftir ferðum milli Íslands og Bretlands að Icelandair flaug til Manchester og Glasgow í sömu ferðinni. Þeir sem ætluðu til skosku borgarinnar urðu þá að bíða í þotunni í Manchester á meðan farþegar á leið þangað fóru frá borði og aðrir komu inn. Icelandair hætti þessu hringflugi milli Íslands, Englands og Skotlands haustið 2011 og síðan þá hefur framboð á flugi héðan til Manchester og Glasgow aukist verulega. Auk þess hóf easyJet að fljúga hingað frá Manchester og frá árinu 2013 hefur umferðin þaðan, til og frá Íslandi, aukist úr 65 þúsund farþegum í ríflega 110 þúsund eins og sjá má hér fyrir neðan. Útlit er fyrir frekari aukningu næsta vetur því bæði easyJet og Icelandair ætla að fjölga ferðum miðað við núverandi áætlanir. Íslenska félagið ætlar einnig að bæta í flugið til Glasgow og fljúga þangað daglega frá og með september næstkomandi.