Samfélagsmiðlar

Sala á jólaferðum til Tenerife fer vel af stað

tenerife stor

Þrátt fyrir að framboð á ferðum til spænsku eyjunnar hafi tvöfaldast nýliðinn vetur þá eru forsvarsmenn ferðaskrifstofanna ánægðir með vertíðina og ætla að bæta enn meiru við en WOW dregur saman enn sem komið er. Þrátt fyrir að framboð á ferðum til spænsku eyjunnar hafi tvöfaldast nýliðinn vetur þá eru forsvarsmenn ferðaskrifstofanna ánægðir með vertíðina og ætla að bæta enn meiru við en WOW dregur saman enn sem komið er.
Það sem af er ári hafa mánaðarlega verið sæti fyrir þrjú þúsund farþega í þotunum sem fljúga héðan til Tenerife. Þetta er um tvöfalt meira framboð en á sama tíma í fyrra og í boði hafa verið fjórar brottfarir í hverri viku, tvær á vegum WOW air og tvær á vegum stærstu ferðaskrifstofa landsins. Áður en WOW hóf áætlunarflug til eyjunnar í mars í fyrra þá takmarkuðust samgöngurnar þangað við leiguflug ferðaskrifstofanna.

Veturinn kom vel út

Þrátt fyrir þessa miklu aukningu þá eru forsvarsmenn ferðaskrifstofanna ánægðir með veturinn og ætla að bæta í fyrir þann næsta. „Sala á ferðum til Tenerife gekk mjög vel í vetur og okkur tókst ekki að anna eftirspurn. Vegna þessarar miklu eftirspurnar hefur VITA stóraukið framboð og verður t.d. með þrjár jólaferðir. Við höfum einnig bætt við flugi vikulega til Tenerife og Gran Canaría allan næsta vetur og prógrammið á báða þessa staði var sett í sölu 2 mánuðum fyrr en á síðasta ári“, segir Guðrún Sigurgeirsdóttir, framleiðslustjóri VITA, aðspurð um áhrif þessa stóraukna framboðs á Tenerife ferðum síðustu mánuði. Hún bætir því við að nú þegar sé nánst uppselt í jólaferðirnar þrjár.
Hjá Heimsferðum verður brottförum til Tenerife líka fjölgað úr einni í tvær í byrjun næsta árs. „Veturinn kom vel út og salan góð. Það var því ákveðið að fjölga ferðum í febrúar, mars og apríl á næsta ári,“ segir Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri Heimsferða.

WOW býður með að fjölga ferðum

Sem fyrr segir þá var nýtt áætlunarflug WOW air til Tenerife ástæðan fyrir því að framboð á ferðum þangað jókst svona mikið í vetur. Í flugáætlun félagsins fyrir næsta vetur er hins vegar aðeins gert ráð fyrir einni ferð í viku til Tenerife en ekki tveimur líkt síðustu mánuði. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW, segir hins vegar ekki útilokað að fleiri ferðum til Tenerife verði bætt við síðar meir. Og þess er kannski ekki langt að bíða því að sögn Þórs Bæring, framkvæmdastjóri Gaman ferða, systurfélags WOW, þá fer sala á ferðum til eyjunnar vel af stað. „Fólk er þegar byrjað að bóka fyrir næsta vetur og meðal annars jólin. Ef þetta heldur áfram svona þá munum við mjög líklega þurfa að bæta við vél til Tenerife næsta vetur,“ segir Þór Bæring.
Auk allra þessara ferða til Tenerife þá bjóða ferðaskrifstofurnar og WOW air einnig upp á ferðir til Kanarí (Cran Canaría). Þar sem ferðamannastraumur frá þessum spænsku eyjum hingað til lands er mjög lítill þá eru það aðeins íslenskir farþegar sem nýta sér samgöngurnar en á flestum öðrum flugleiðum frá Keflavíkurflugvelli eru það erlendir ferðamenn og skiptifarþegar sem skipa flest sætin.

Nýtt efni
MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …

MYND: ÓJ

Kínverskir ferðamenn hafa verið töluvert áberandi í Reykjavík og víðar um land í vor. Auðvitað er fólk af kínverskum uppruna búsett um allan heim og eitthvað af því fer í Íslandsferðir en þeim hefur snarfjölgað sem koma hingað alla leið frá Alþýðulýðveldinu Kína. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli komu hingað í marsmánuði 8.642 Kínverjar og …

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …