Að jafnaði þurftu breskir ferðamenn aðeins að greiða um 17 þúsund krónur fyrir flugmiða til Íslands og heim aftur á öðrum fjórðungi ársins. Á sama tíma í fyrra var fargjaldið tvöfalt hærra. Að jafnaði þurftu breskir ferðamenn aðeins að greiða um 17 þúsund krónur fyrir flugmiða til Íslands og heim aftur á öðrum fjórðungi ársins. Á sama tíma í fyrra var fargjaldið tvöfalt hærra.
Í apríl, maí og júní flugu rétt um 56 þúsund breskir ferðamenn frá Keflavíkurflugvelli og nam aukningin 36 prósentum samkvæmt talningu Ferðamálastofu. En Bretar og Bandaríkjamenn eru langfjölmennastir í hópi ferðamanna á Íslandi og sl. vetur stóðu breskir gestir undir meira en þriðju hverri gistinótt á hótelum höfuðborgarsvæðisins. Framboð á flugi milli Íslands og Bretlands hefur líka margfaldast síðustu ár og í dag er flogið hingað frá 11 breskum flugvöllum. Þar af fjórum á Lundúnarsvæðinu en þangað er flogið allt að átta sinnum á dag á vegum fjögurra flugfélaga og lætur nærri að fimmta hver þota sem tekur á loft frá Keflavíkurflugvelli setji stefnuna á bresku höfuðborgina samkvæmt talningum Túrista.
Verðhrun síðustu mánuði
Síðustu misseri hefur ferðunum til Bretlands fjölgað og til að mynda var WOW air að hefja flug til Edinborgar og Bristol og Icelandair bætti nýverið Aberdeen við leiðakerfi sitt. Auk þess ætlar British Airways að bjóða upp á daglegt flug til Íslands frá Heathrow í stað þriggja ferða í viku. Þessi mikla aukning hefur valdið því að verð á farmiðum til Íslands og heim aftur frá breskum flugvöllum lækkaði um 49 prósent á öðrum ársfjórðungi í pundum talið samkvæmt tölum frá flugbókunarsíðunni Kayak sem er ein sú stærsta í heimi. Eða úr 175 pundum í 89 fyrir flugmiða báðar leiðir.
Þegar breska verðið er umreiknað í íslenskar krónur, miðað við meðalverð á öðrum ársfjórðungi 2015 og 2016, þá kemur í ljós að meðalfargjaldið í ár var 16.759 krónur en var 35.962 kr. á sama tíma í fyrra. Lækkunin er þá enn meiri eða 53 prósentum og misræmið skýrist af ört lækkandi gengi breska pundsins.
Reykjavík er hástökkvari
Á sama tíma og fargjöldin hingað lækka þá aukast vinsældir landsins því á öðrum ársfjórðungi var Reykjavík fimmti vinsælasti áfangastaðurinn meðal þeirra sem leituðu að farmiðum á vef Kayak eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Íslenska höfuðborgin var hins vegar í 44. sæti á sama tíma í fyrra.
Hvort tölur Kayak gefa rétta mynd af verðþróun á flugi milli Íslands og Bretlands er erfitt að segja en þar sem Kayak er ein stærsta flugleitarsíða heims en nýtur þó mun meiri vinsælda vestanhafs en í Evrópu.