Það er ekki útlit fyrir að fólksflutningarnir til Frakklands síðustu vikur hafi dregið úr áhuga fólks á fótboltaferðum til Englands í vetur. Það er ekki útlit fyrir að fólksflutningarnir til Frakklands síðustu vikur hafi dregið úr áhuga fólks á fótboltaferðum til Englands í vetur.
Í júní flugu 67 þúsund íslenskir farþegar til útlanda sem er miklu meiri fjöldi en áður hefur mælst í einum mánuði frá því að talningar Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli hófust. Óhætt er að fullyrða að þátttaka íslenska karlalandsliðsins í EM í Frakklandi sé helsta ástæðan fyrir þessari einstöku ferðagleði landans enda fengu Íslendingar úthlutaða tugþúsundir miða á leiki liðisins í riðlakeppninni sem hófst 14.júní. Margir sóttu einnig leikina gegn Englendingum og Frökkum í sextán og átta liða úrslitum.
Stórstjörnu trekkja að
Þrátt fyrir allar þessar Frakklandsreisur í sumar þá hefur sala á fótboltaferðum fyrir veturinn farið vel af stað að sögn Þórs Bærings Ólafssonar hjá Gaman-ferðum sem sérhæfir sig m.a. í boltaferðum til Bretlands. „Við fundum fyrir samdrætti síðasta vor en tímabilið hefur farið ótrúlega vel á stað hjá okkur og salan framar vonum.“ Þór Bæring telur þennan mikla áhuga m.a. skrifast á nýja liðsmenn ensku liðanna. „Það eru stórar stjörnur á leið í enska boltann eins og til dæmis að Zlatan Ibrahimovic og Henrikh Mkhitaryan til Manchester United, Granit Xhaka til Arsenal, Sadio Mane til Liverpool og Ilkay Gundogen til Manchester City. Það er alltaf mikil eftirvænting í kringum nýja leikmenn. Svo er auðvitað Jose Mourinho tekinn við liði Manchester United og Pep Guardiola við liði Manchester City þannig að það er meiri spenna í fólki núna en síðustu sumur sýnist mér.“
Útlit fyrir ódýrari fótboltaferðir
Á þessum tíma fyrir ári síðan þá kostaði eitt breskt pund 206 krónur en síðan þá hefur pundið fallið um 23 prósent og kostar núna 159 krónur. Þar með kostar minna mun minna, í krónum talið, að bóka gistingu í Bretland, heimsækja veitingastaði og fara á völlinn. Eins gætu fargjöld milli Íslands og Bretlands lækkað þar sem veiking pundsins er talin líkleg til að draga úr utanlandsferðum Breta. Þar með myndi eftirspurn eftir flugsætum minnka, þar á meðal til Íslands en í dag er flogið allt árið um kring til Íslands frá ellefu breskum flughöfnum, þar af fjórum á Lundúnarsvæðinu.