Flest þau flugfélög sem fljúga til og frá landinu bættu við ferðum milli ára en sem fyrr eru þau íslensku langstærst. Flest þau flugfélög sem fljúga til og frá landinu bættu við ferðum milli ára en sem fyrr eru þau íslensku langstærst.
Að jafnaði voru farnar 85 áætlunarferðir á dag frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí en til samanburðar var meðaltalið 65 ferðir í júlí í fyrra og 56 á sama tíma árið 2014 samkvæmt talningum Túrista. Aukningin á milli ára er því umtalsverð og munar þar einna mestu um fjölgun ferða Icelandair og WOW air en eins hafa fleiri erlend flugfélög bætt Íslandi við leiðakerfi sín og sum eru farin að fljúga hingað frá fleiri en einum stað. Til að mynda flýgur SAS nú til Íslands frá bæði Kaupmannahöfn og Ósló og Delta frá Minneapolis og New York. Þessi fjölgun ferða og flugfélaga hefur þau áhrif að hlutdeild flugfélaganna í umferðinni um Keflavíkurflugvöll breytist á milli ára eins og sjá má á súluritinu hér fyrir neðan. Vægi Icelandair dregst þannig saman þrátt fyrir að leiðakerfi félagsins hafi aldrei verið eins stórt og eins fer easyJet úr þriðja í fimmta sæti yfir stærstu flugfélögin. Sem fyrr eru tölur Túrista byggðar á fjölda brottfara frá Keflavíkurflugvelli en eins og gefur að skilja eru þotur flugfélaganna misstórar og því geta sum þeirra flutt mun fleiri farþega í hverri ferð en önnur. Íslensku félögin tvö eru til að mynda þau einu sem notast við breiðþotur í flugi til og frá Íslandi.
Flugfélögin sem fljúga oftast til og frá landinu
