Airberlin er í kröggum en fyrirtækið hefur stundað Íslandsflug um langt skeið og var umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landi í ágúst. Airberlin er í kröggum en fyrirtækið hefur stundað Íslandsflug um langt skeið og var umsvifamesta erlenda flugfélagið hér á landi í ágúst.
Sumarið 2006 fór Airberlin jómfrúarferð sína til Íslands og allar götur síðan hefur þetta annað stærsta flugfélag Þýskalands boðið upp á flug hingað frá nokkrum þýskum borgum frá vori og fram á haust. Síðastliðinn vetur bauð félagið svo í fyrsta skipti upp á vetrarferðir hingað frá Berlín og nýverið var tilkynnt um heilsársflug til Dusseldorf. Umsvif Airberlin hafa því aukist umtalsvert hér á landi síðustu misseri og síðasta mánuði lentu þotur félagsins að jafnaði þrisvar sinnum á dag á Keflavíkurflugvelli samkvæmt daglegum talningum Túrista. Ekkert annað erlent flugfélag stóð fyrir jafn tíðum ferðum hingað í ágúst. Auk þess býður dótturfélagið, FlyNiki, upp á þrjár brottfarir í viku til Íslands frá Vínarborg og má áætla að á bilinu 35 til 40 þúsund erlendir ferðamenn hafi nýtt sér áætlunarferðir félaganna tvegga til Íslands í sumar.
Losa sig við 78 þotur
Rekstur Airberlin hefur hins vegar lengi gengið illa og í fyrra keyptu eigendur flugfélagsins Etihad, frá Sameinuðu arabísku fyrstadæmunum, stóran hlut í fyrirtækinu. Það virðist hins vegar ekki hafa dugað því í fyrradag tilkynntu stjórnendur Airberlin að flugfloti félagsins yrði helmingaður og stöðugildum fækkað um tólf hundruð. Í framhaldinu er ætlunin að Airberlin einbeiti sér að flugi frá aðeins Berlín og Dusseldorf og sinni eingöngu ábatasömum flugleiðum og langferðum eins og það er orðað í tilkynningu. Talsmaður Airberlin gat hins vegar ekki nú í morgun gefið Túrista svör um hvort flugið til Íslands frá Munchen og Hamborg myndi leggjast af í framhaldinu eða hvort breytingar yrðu á áætluninni frá Berlín og Dusseldorf. En líkt og áður segir þá er vetrarflug frá síðarnefndu borgunum til Íslands á dagskrá Airberlin í allan vetur.
Tækifæri fyrir Icelandair og WOW
Þessi mikli niðurskurður hjá Airberlin er í erlendu ferðapressunni talinn verða til þess að lággjaldaflugfélög eins og Ryanair, easyJet og Eurowings muni auka umsvif sín á þýska markaðnum. Það síðarnefnda er í eigu Lufthansa, stærsta flugfélags Þýskalands, og mun fyrirtækið taka yfir tugi flugvéla frá Airberlin í kjölfar niðurskurðarins. Eurowings flýgur hingað til lands frá 5 þýskum borgum en aðeins yfir sumarmánuðina en á því gæti orðið breyting ef samdrátturinn hjá Airberlin nær einnig til Íslandsferðanna. Bæði Icelandair og WOW air eru einnig stórtæki í flugi milli Íslands og Þýskalands og forsvarsmenn félaganna gætu séð tækifæri í tíðari ferðum fari Airberlin út af íslenska markaðnum næsta sumar þegar hið gjörbreytta Airberlin fer í loftið.