Samfélagsmiðlar

Icelandair leitar á kunnugleg mið

philadelphia

Á næsta ári hefur Icelandair flug bandarísku borganna Philadelphia og Tampa. Báðar eru skammt frá öðrum áfangastöðum flugfélagsins. Á næsta ári hefur Icelandair flug bandarísku borganna Philadelphia og Tampa. Báðar eru skammt frá öðrum áfangastöðum flugfélagsins. 
Í sumarbyrjun fer Icelandair jómfrúarferð sína til Philadelphia á austurströnd Bandaríkjanna og mun félagið fljúga þangað fram til 20. september. Þá verður nýhafið heilsársflug félagsins til Tampa í Flórída og þar með verða áfangastaðir félagsins í Norður-Ameríku orðnir átján talsins.
Athygli vekur að bæði Philadelphia og Tampa eru skammt frá öðrum flughöfnum sem Icelandair flýgur nú þegar til. Þannig þurfa íbúar fyrrnefndu borgarinnar aðeins að keyra í einn og hálfan tíma til að komast á Newark flugvöll þaðan sem þotur Icelandair taka á loft allt árið. Og þeir sem búa í Tampa geta komist um borð í Icelandair flugvél með því að keyra 150 kílómetra í austur í átt að flugvellinum í Orlando en þaðan flýgur Icleandair frá hausti og fram í sumarbyrjun hvert ár. Til Tampa verður hins vegar flogið tvisvar sinnum í viku allt árið um kring. Þéttleiki leiðarkerfis Icelandair er þó ekki mestur þarna því milli flugvallanna í Manchester og Birmingham í Englandi eru aðeins 142 kílómetrar en íslenska flugfélagið flýgur til beggja þessara borga allt árið um kring.

Ekki til fjölmennustu ríkjanna

Með þessum flugi til Philadelphia og Tampa má segja að Icelandair sé að styrkja sig á núverandi mörkuðum vestanhafs. Í stað þess að fara út í óvissuna í Kaliforníu og Texas, tveimur fjölmennustu fylkjum Bandaríkjanna, eða koma sér fyrir á þeim 1500 kílómetra kafla sem skilur að syðsta (Orlando) og næstsyðsta (Washington-borg) áfangastað félagsins á austurströnd Bandaríkjanna.
Á árunum í kringum hrun bauð Icelandair reyndar upp á flug til San Francisco en hefur ekki tekið upp þráðinn þar að nýju þó nú hafi félagið á ný yfir að ráða langdrægari flugvélum. WOW air hóf hins vegar í sumar flug til bæði Los Angeles og San Francisco og það gæti hafi fælt Icelandair frá þessum hluta Bandaríkjanna.  
Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2017 verður um 13 prósent umfangsmeiri en á þessu ári og áætlað er að farþegar verði um 4,2 milljónir á árinu 2017. Það er fjölgun um 450 þúsund. 

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …