Samfélagsmiðlar

Icelandair skarar fram úr í flokki minni flugfélaga

icelandair capa

Hraður vöxtur og góð afkoma Icelandair hefur ekki farið fram hjá þeim sem rýna í rekstur flugfélaga. Hraður vöxtur og góð afkoma Icelandair hefur ekki farið fram hjá þeim sem rýna í rekstur flugfélaga.
Icelandair var í vikunni valið flugfélag ársins í flokki smærri flugfélaga af CAPA, Center for Aviation, sem er alþjóðleg upplýsingaveita um flugmál. Verðlaunin sem Icelandair hlaut eru veitt því flugfélagi í heiminum sem þykir skara fram úr meðal þeirra sem flytja færri en 10 milljónir farþega árlega. Dómnefnd alþjóðlegra sérfræðinga valdi Icelandair vegna sterkrar frammistöðu í harðri alþjóðlegri samkeppni þrátt fyrir að heimamarkaður félagsins sé lítill. Félagið hafi vaxið hratt og skilað hvað bestum rekstrarárangri meðal hefðbundinna flugfélaga. Peter Harbison, forstjóri CAPA, sagði m.a. frumlegt og framsækið leiðakerfi með tengingum milli Evrópu og Norður-Ameríku hafa drifið áfram bæði vöxt félagsins og ferðaþjónustunnar á Íslandi, og að bæði vöxturinn og afkoman væri sannarlega óvenjuleg meðal Evrópskra flugfélaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Spáðu stofnun risa norræns flugfélags

CAPA er helsta upplýsingaveita og rannsóknaraðili á alþjóðaflugmarkaðinum og sérfræðingar fyrirtækisins veita stjórnvöldum, flugfélögum og flugvöllum um allan heim ráðgjöf og tölfræðiupplýsingar. En þess má geta að fyrir nokkrum árum var því velt upp í skýrslu fyrirtækisins að jarðvegur væri fyrir sameiningu þriggja stærstu flugfélaga Norðurlanda en að Icelandair myndi hins vegar standa fyrir utan. Ekkert bólar enn á þessari stóru samþjöppun.
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair tók við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í Amsterdam í gærkvöldi.

Nýtt efni

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …

Xiaomi er hraðvaxta hátæknifyrirtæki í Beijing í Kína, stofnað fyrir 14 árum af frumkvöðlinum og milljarðamæringnum Lei Jun og félögum hans. Á síðasta ári var fyrirtækið í þriðja sæti á lista þeirra sem seldu flesta farsímana - næst á eftir Samsung og Apple. Xiaomi framleiðir og selur margskonar annan háþróaðan tæknibúnað og neytendavörur en samdráttur …

Fyrir rúmu ári var greint frá því að þýska Lufthansa-samsteypan hefði áhuga á að kaupa 40 prósenta hlut í ítalska þjóðarflugfélaginu ITA en niðurstaða hefur ekki enn fengist. Í janúar hóf Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins rannsókn á samkeppnisáhrifum þess að Þjóðverjarnir eignuðust stóran hlut í ítalska flugfélaginu sem lengi hefur verið stjórnvöldum á Ítalíu höfuðverkur.  Nú í …

Fyrir mánuði sendi Storytel frá sér fréttatilkynningu þar sem kynnt var ný þjónusta fyrir notendur. Brátt eiga hlustendur hljóðbóka möguleika á að velja nýjan lesara ef þeim líkar ekki innlesturinn. Valraddirnar eru allar skapaðar af vélmennum eða svokölluðum gervigreindarupplesurum.  Þetta nýja verkfæri Stoyrtel er tekið í gagnið vegna þess að 89 prósent af þeim sem …