Hraður vöxtur og góð afkoma Icelandair hefur ekki farið fram hjá þeim sem rýna í rekstur flugfélaga. Hraður vöxtur og góð afkoma Icelandair hefur ekki farið fram hjá þeim sem rýna í rekstur flugfélaga.
Icelandair var í vikunni valið flugfélag ársins í flokki smærri flugfélaga af CAPA, Center for Aviation, sem er alþjóðleg upplýsingaveita um flugmál. Verðlaunin sem Icelandair hlaut eru veitt því flugfélagi í heiminum sem þykir skara fram úr meðal þeirra sem flytja færri en 10 milljónir farþega árlega. Dómnefnd alþjóðlegra sérfræðinga valdi Icelandair vegna sterkrar frammistöðu í harðri alþjóðlegri samkeppni þrátt fyrir að heimamarkaður félagsins sé lítill. Félagið hafi vaxið hratt og skilað hvað bestum rekstrarárangri meðal hefðbundinna flugfélaga. Peter Harbison, forstjóri CAPA, sagði m.a. frumlegt og framsækið leiðakerfi með tengingum milli Evrópu og Norður-Ameríku hafa drifið áfram bæði vöxt félagsins og ferðaþjónustunnar á Íslandi, og að bæði vöxturinn og afkoman væri sannarlega óvenjuleg meðal Evrópskra flugfélaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.
Spáðu stofnun risa norræns flugfélags
CAPA er helsta upplýsingaveita og rannsóknaraðili á alþjóðaflugmarkaðinum og sérfræðingar fyrirtækisins veita stjórnvöldum, flugfélögum og flugvöllum um allan heim ráðgjöf og tölfræðiupplýsingar. En þess má geta að fyrir nokkrum árum var því velt upp í skýrslu fyrirtækisins að jarðvegur væri fyrir sameiningu þriggja stærstu flugfélaga Norðurlanda en að Icelandair myndi hins vegar standa fyrir utan. Ekkert bólar enn á þessari stóru samþjöppun.
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair tók við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í Amsterdam í gærkvöldi.