Fljúga beint til Egilsstaða með breska skólakrakka

egilsstadaflugvollur

Fararstjórar breska nemenda vildu komast út á land í stað þess að dvelja með þau á suðvesturhorninu. Fararstjórar breska nemenda vildu komast út á land í stað þess að dvelja með þau á suðvesturhorninu.
Þó ekki verði framhald á áætlunarflugi Discover the World milli Lundúna og Egilsstaða næsta sumar þá ætla forsvarsmenn þessarar bresku ferðaskrifstofu að bjóða skólahópum, þar í landi, upp á beint flug á Austfirði. Fyrsta ferðin verður farin í október og að sögn Clive Stacey, forstjóra og stofnanda Discover the World, er nú þegar uppselt í hana. Hann segir að fleiri brottförum verði bætt við ef eftirspurn reynist næg og er ætlunin að starfrækja þessar ferðir í tengslum við árleg skólafrí í Bretlandi sem haldin eru í febrúar, yfir páska og svo í október.

Of margir á suðvesturhornið

Discover the World hefur um langt skeið skipulagt ferðir fyrir breska skólahópa og segir Stacey að frumkvæðið að þessu flugi til Egilsstaða hafi meðal annars komið frá þeim kennurum sem fylgt hafi nemendum sínum til Íslands um árabil en finnist núna suðvesturhornið orðið of þéttsetið af ferðamönnum. „Við erum því mjög ánægð að geta boðið þessu fólki upp á nýjan valkost því annars er allt eins líklegt að þau hefðu hætt að leggja leið sína til Íslands með nemendur sína.”
Sem fyrr segir þá verður áætlunarfluginu til Egilsstaða frá Gatwick ekki haldið áfram á næsta sumar en verkefnið hlaut 10 milljón króna styrk úr hinum nýstofnaða flugjöfnunarsjóði samkvæmt frétt Austurfréttar.

Vonast eftir samstarfi um flug til Akureyrar

Tvær umsóknir hafa borist sjóðnum vegna fyrirhugaðs flugs á næsta ári samkvæmt svari Valgerðar Benediktsdóttur, formanni sjóðsins, við fyrirspurn Túrista. Ekki fæst hins vegar uppgefið um hvers konar flug er að ræða og hvort ferðinni er heitið til Egilsstaða eða Akureyrar. Hvorug umsóknin er þó frá ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic en forsvarsmenn hennar unnu að því að koma á reglulegu flugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í fyrra. Þar hefur verkefnið hins vegar ekki verið slegið út af borðinu „Við erum alltaf að skoða og spjalla við menn hvort það sé einhver flötur til samstarfs um þetta og höldum áfram að vera vongóðir um breitt samstarf,” segir Egill Örn Arnarson Hansen hjá Trans-Atlantic.